| Sf. Gutt

Ekki sopið kálið

Liverpool vann sér þátttökurétt í Meistaradeildinni með því að ná fjórða sætinu í Úrvalsdeildinni. Eftir að Liverpool vann Middlesbrough 3:0 um síðistu helgi var fjórða sætið í deildinni tryggt en kálið er þó ekki alveg sopið þó það sé komið í ausuna. 

Þrjú efstu liðin, Chelsea, Tottenham Hotspur og Manchester City, í deildinni fara beint í riðlakeppni Meistaradeildarinnar. En liðið sem er í fjórða sæti þarf að fara í umspil um keppnisrétt í riðlakeppninni. Liverpool fer í efsta styrkleikaflokk og sleppur því við hin sterkustu liðin. Að minnsta kosti þau lið sem eru sterkust á pappírnum. 

Ljóst er að ekkert má út af bera í sambandi við að komast í riðlakeppnina en Liverpool á að vera með nógu sterkt lið til að komast áfram. Vonandi fer allt að óskum!





TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan