| Sf. Gutt
Í fyrradag var staðfest að Liverpool hefði kallað Jordan Ibe heim úr láni. Hann var í byrjun leiktíðar lánaður til Derby County. Það hefur legið í loftinu upp á síðkastið að Brendan Rodgers væri með það í huga að kalla piltinn heim úr láninu enda þörf á að hressa upp á sóknarleik Liverpool. Það hefur nú verið gjört.
Jordan var mjög góður á undirbúningstímabilinu hjá Liverpool en samt var ákveðið að lána hann. Hann stóð sig með vel hjá Derby, var fastamaður í liðinu, skoraði nokkur mörk og lagði líka upp. Á síðustu leiktíð var Jordan í láni hjá Birmingham og þótti líka standa sig vel. Liverpool fékk Jordan frá Wycombe árið 2012.
Það verður gaman að sjá hvort Jordan fær einhver tækifæri í aðalliði Liverpool til vorins. Væntanlega hefur hann ekki verið kallaður heim til að vera með varaliðinu.
TIL BAKA
Jordan Ibe kominn heim
Í fyrradag var staðfest að Liverpool hefði kallað Jordan Ibe heim úr láni. Hann var í byrjun leiktíðar lánaður til Derby County. Það hefur legið í loftinu upp á síðkastið að Brendan Rodgers væri með það í huga að kalla piltinn heim úr láninu enda þörf á að hressa upp á sóknarleik Liverpool. Það hefur nú verið gjört.Jordan var mjög góður á undirbúningstímabilinu hjá Liverpool en samt var ákveðið að lána hann. Hann stóð sig með vel hjá Derby, var fastamaður í liðinu, skoraði nokkur mörk og lagði líka upp. Á síðustu leiktíð var Jordan í láni hjá Birmingham og þótti líka standa sig vel. Liverpool fékk Jordan frá Wycombe árið 2012.
Það verður gaman að sjá hvort Jordan fær einhver tækifæri í aðalliði Liverpool til vorins. Væntanlega hefur hann ekki verið kallaður heim til að vera með varaliðinu.
Nýlegar fréttir
-
| Sf. Gutt
Tilkynnt um nýjan aðalstyrktaraðila! -
| Sf. Gutt
Reyni að gera mitt allra besta alla daga! -
| Sf. Gutt
Liverpool kaupir ungan franskan framherja! -
| Sf. Gutt
Richard Hughes lætur af störfum -
| Sf. Gutt
Alisson kominn upp í fjórða sæti! -
| Sf. Gutt
Leikjatilfærslur -
| Sf. Gutt
Nýr varafyrirliði -
| Grétar Magnússon
Gluggadagur - hvað er títt? -
| Grétar Magnússon
Stefan Bajcetic seldur til Celta Vigo -
| Grétar Magnússon
Barcola staðfestur
Fréttageymslan

