| Heimir Eyvindarson

Gerrard ósáttur við innkaupastefnu FSG

Steven Gerrard segir í viðtali við The Guardian að Liverpool eigi ekki að óttast að kaupa leikmenn sem komnir eru af léttasta skeiði. Nauðsynlegt sé að ná skynsamlegri blöndu yngri og eldri leikmanna.

Það er yfirlýst stefna Fenway Sports Group, eigenda Liverpool, að kaupa ekki leikmenn sem eiga lítið eftir af ferlinum þar sem endursöluvirði slíkra leikmanna sé sama og ekki neitt. Mikil umræða spannst um þessa stefnu eigendanna í ágúst s.l. þegar Liverpool vildi ekki kaupa hinn 29 ára Clint Dempsey á 6 milljónir punda.

Oussama Assiadi er enn sem komið er elsti leikmaðurinn sem Liverpool hefur keypt á síðustu 12 mánuðum, en hann er 24 ára gamall. Aðrir leikmenn sem Liverpool hefur keypt undanfarið ár eru Daniel Sturridge 23 ára, Fabio Borini 21 árs, Joe Allen 22 ára og Samed Yesil 18 ára. Steven Gerrard er ekki allskostar sáttur við þessa þróun mála.

„Ef ég á að segja alveg eins og er þá er ekki 100% sammála þessari stefnu", segir Gerrard. „Ég hef séð marga leikmenn skipta um félag þegar þeir eru 28 - 9 ára eða jafnvel eldri og gera góða hluti. Besta dæmið er líklega Gary Mc Allister sem var 35 ára þegar hann kom til okkar. Ég lærði mikið af Gary þegar hann var hjá okkur og hann var liðinu mikill styrkur."

„Annað skýrt dæmi er Frank Lampard. Ef Chelsea endurnýjar ekki samninginn við hann þá er alveg ljóst að eitthvað félag dettur í lukkupottinn. Frank er hvað, 34 ára? Hann er toppleikmaður sem á að minnsta kosti tvö góð ár eftir sem afburða sóknartengiliður."

„Ég skil vel að það sé lögð áhersla á að kaupa unga efnilega leikmenn. Helst breska. En það má ekki þýða að engir aðrir komi til greina."

„Ég er þeirrar skoðunar að það verði að ná fram góðri blöndu yngri og eldri leikmanna. Ég horfi til dæmis á lið eins og Aston Villa, sem er í basli þessa dagana. Þeir eiga mikið af ungum og efnilegum leikmönnum, en þá skortir tvo til þrjá reynslubolta sem geta dregið vagninn."




TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan