| Grétar Magnússon
        
        TIL BAKA
    
Fánadagur á Akureyri á sunnudaginn
Í tengslum við leik Everton og Liverpool, sem fram fer á Goodison Park, verður fánadagur Liverpoolklúbbsins á Íslandi haldinn hátíðlegur á heimavelli klúbbsins á Akureyri, SportVitanum sem staðsettur er við Strandgötuna.  Mikið og margt verður að gerast á fánadeginum og glæsileg verðlaun verða í boði.  Meðal þess sem við ætlum að taka okkur fyrir hendur er:
- Getraun
- Best skreytti einstaklingurinn
- Best skreytta barnið
- Best skreytta borðið 
 
 Nú er um að gera að dressa sig upp og mæta á svæðið í sínu fínasta Liverpool pússi, mæta tímanlega og taka þátt í að mynda frábæra stemmningu.
Að sjálfsögðu verða sérkjör klúbbsins í boði á svæðinu, hvort sem um ræðir mat eða drykk.  Dagskráin sem slík hefst klukkan 12:30 en leikurinn sjálfur hefst klukkutíma síðar.  Húsið sjálft mun opna kl. 11:30.
Vert er að benda fólki á að vetrartími tekur gildi í Bretlandi aðfaranótt sunnudagsins 28. október og því hefst leikurinn á sama tíma hér heima og úti.
Stjórn Liverpoolklúbbsins verður á staðnum og hafa menn og konur því tækifæri á því að heilsa uppá stjórnarmeðlimi.
Hér má sjá Facebook síðu stuðningsmanna félagsins á Akureyri og hér má finna Facebook síðu SportVitans.

Nýlegar fréttir
        - 
                         | Sf. Gutt
 Óheppnasti leikmaður í heimi?
- 
                         | Sf. Gutt
 Úr leik!
- 
                         | Sf. Gutt
 Verðum að leggja harðar að okkur!
- 
                         | Sf. Gutt
 Jeremine Frimpong meiddur
- 
                         | Sf. Gutt
 Vildi sýna öllum virðingu
- 
                         | Sf. Gutt
 Alisson meiddur
- 
                         | Sf. Gutt
 Curtis með met!
- 
                         | Sf. Gutt
 Stórsigur í Þýskalandi!
- 
                         | Sf. Gutt
 Ryan Gravenberch meiddur
- 
                         | Sf. Gutt
 Meiðslafréttir
Fréttageymslan