| SSteinn

Fótbolta Pub quiz PLAYERS


Klukkan 21:00 í kvöld er Pub-Quiz keppni á Players í Kópavogi. Þetta er í annað sinn sem að Players stendur fyrir slíkri keppni en síðastliðinn fimmtudag var fjölmennt á staðnum.

Hjörvar Hafliðason semur spurningar og er spyrill. 32 spurningar eru í Pub-Quizinu í kvöld, 16 í fyrri hálfleik og 16 í seinni hálfleik. Tveir menn eru saman í liði.

Í verðlaun eru kassar af bjór, gjafabréf í bjórskólann, matarúttektir á Players, gjafabréf frá Jóa Útherja, DVD diskurinn Atvinnumennirnir okkar og bókin mannasiðir eftir Egil "Gillz" Einarsson.

Verðlaun eru veitt fyrir þrjú efstu sætin auk þess sem þeir allra lélegustu verða verðlaunaðir.

Við hvetjum alla stuðningsmenn Liverpool sem tök hafa á, að mæta og stilla sér upp í lið.
TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan