| Sf. Gutt

Robbie Fowler jók á páskagleðina

Páskarnir eru gleðihátíð og Robbie Fowler jók enn á páskagleðina hjá stuðningsmönnum Liverpool með því að skora sigurmarkið gegn Blackburn. Þetta var sjötti deildarsigur Evrópumeistaranna í röð og liðið þarf nú aðeins eitt stig í viðbót til að gulltryggja þriðja sæti deildarinnar. Að auki á liðið enn möguleika á öðru sætinu. Robbie skoraði þarna sitt fjórða mark eftir endurkomuna og það þriðja í síðustu þremur leikjum.

Steven Gerrard var fjarri vegna meiðsla og Jamie Carragher leiddi Liverpool því til leiks. Fyrir leikinn var einnar mínútu þögn til minningar um þá 96 stuðningsmenn Liverpool sem létust í Sheffield fyrir seytján árum. Leikurinn var tilþrifalítill fram eftir hálfleiknum. Evrópumeistararnir náðu þó betri tökum á leiknum þegar á leið og á 29. mínútu sköpuðu þeir sér fyrsta marktækifæri leiksins og þeir færðu sér það snnarlega í nyt. John Arne Riise tók innkast inn að vítateig heimamanna. Robbie Fowler stýrði boltanum, með brjóstkassanum, inn fyrir vörnina og tók svo á rás inn í vítateiginn. Fernando Morientes fékk boltann frá Robbie og lék að markinu. Hann var sjálfur kominn í gott skotfæri en hann sýndi mikla óeigingirni og renndi boltanum fyrir markið á Robbie sem skoraði af öryggi. Frábært mark og Robbie skoraði skoraði þarna í þriðja leik sínum í röð. Á meðan leikmenn og stuðningsmenn Liverpool fögnuðu móthmæltu leikmenn Blackburn markinu harðlega. Ástæðan var sú að Djibril Cissé stóð fyrir innan vörn Blackburn þegar Robbie stýrði boltanum til Fernando Morientes. Spánverjinn var ekki rangstæður. Frakkinn var vissulega fyrir innan vörnina en línuvörðurinn taldi hann ekki hafa áhrif á leikinn. Reiði heimamanna var skiljanleg en línuvörðuinn gat auðveldlega rökstutt ákvörðun sína með rökum úr knattspyrnulögunum. Leikmenn Liverpool voru sterkari fram að leikhléi þrátt fyrir að heimamenn væru mjög grimmir sökum reiði vegna marksins. Rétt undir lok hálfleiksins sneri Liverpool vörn í sókn og Robbie Fowler sendi frábæra sendingu inn fyrir vörn Blackburn. Djibril Cissé komst einn í gegn og lék inn í teig þaðan sem hann skaut föstu skoti að marki. Brad Friedel varði frábærlega. Boltinn skoppaði upp í loftið og datt svo ofan á þverslána. Heimamenn sluppu vel og ekki gátu þeir kvartað að vera undir því þeir áttu ekki eitt einasta markskot í hálfleiknum.

Blackburn setti meiri kraft í sóknarleik sinn eftir leikhlé, enda í baráttu um Evrópusæti, en vörn Liverpool var frábær auk þess sem Jose Reina var öryggið uppmálað fyrir aftan hana. Hættulegasta færi Blackburn kom þegar Nýsjálendingurinn Ryan Nelsen skallaði rétt framhjá snemma í hálfleiknum. Jose Reina blakaði svo hættulegri fyrirgjöf frá Paul Dickov yfir markið litlu síðar. Liverpool hefði getað gert út um leikinn þegar tuttugu mínútur voru eftir þegar Fernando Morientes skallaði fyrirgjöf Harry Kewell framhjá. Það mátti ekkert út af bera þegar forystan var aðeins eitt mark en sem fyrr segir þá var vörn Liverpool framúrskarandi. Djibril Cissé hefði átt að bæta við marki í meiðslatíma. Líkt og undir lok fyrri hálfleiks þá slapp hann einn í gegn. Brad varði frábærlega frá honum. Djibril náði frákastinu en skaut í stöng úr þröngu færi. Litlu siðar var flautað til leiksloka og stuðningsmenn Liverpool fögnuðu naumum en góðum sigri. Þeir gátu haldið glaðir heim og lokið við páskaeggin sín.

Páskatörnin á Englandi heldur áfram á morgun og fram eftir vikunni. Henni er á hinn bóginn lokið hjá Liverpool í ár. Seinni páskaleikurinn átti, samkvæmt dagskrá, að vera heimaleikur gegn Fulham. En þeim leik var flytt og stigin úr honum eru komin í hús. Fyrir þá sem ekki muna þá vann Liverpool hann 5:1 í síðasta mánuði. Leikmenn Liverpool geta því hvílst og lagt á ráðin fyrir rimmuna gegn Chelsea í undanúrslitum F.A. bikarsins sem fer fram á Old Trafford næsta laugardag.

Blackburn Rovers: Friedel, Neill, Khizanishvili, Nelsen, Gray, Bentley, Savage, Reid, Pedersen, Dickov (Kuqi 67. mín.) og Bellamy. Ónotaðir varamenn: Enckelman, Emerton, Mokoena og Peter.

Gul spjöld: Robbie Savage, David Bentley og Lucas Neill.

Liverpool: Reina, Finnan, Carragher, Hyypia, Warnock (Kewell 69. mín.), Cisse, Sissoko, Alonso, Riise, Morientes (Kromkamp 81. mín.) og Fowler (Garcia 63. mín.). Ónotaðir varamenn: Dudek og Traore.

Mark Liverpool: Robbie Fowler (29. mín.). 

Gul spjöld: Mohamed Sissoko og Xabi Alonso.

Áhorfendur á Ewood Park: 29.142.

Rafael Benítez var ánægður með afmælisgjöfina sem leikmenn hans færðu honum. ,,Við leggjum hart að okkur, spilum vel og erum að vinna leiki. Við vissum að þeir hafa fljóta leikmenn í framlínunni svo við héldum okkur til baka og reyndum að hrella þá með skyndisóknum. Í svona leikjum þarf maður að skapa fleiri færi og við náðum einmitt að gera það. Það er ekki hægt að segja að þessi sigur hafi verið öruggur en ég er ánægður."

Forráðmenn Blackburn Rovers eiga þakkir skildar fyrir að koma því í kring að leikurinn skyldi ekki þurfa að fara fram í gær þegar stuðningsmenn Liverpool syrgðu þá 96 sem létust í harmleiknum á Hillsborough. Allir leikmenn liðanna báru sorgarbönd í tilefni ártíðar harmleiksins á Hillsborough. Sorgarböndin báru dagsetninguna 15. apríl 1989 og tákn í minningu þeirra sem létust. Leikmenn annarra liða í Úrvalsdeildinni báru líka samskonar sorgarbönd í páskaleikjunum.

 

  

 

TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan