| Sf. Gutt

Tap á Ljósvangi

Evrópumeistararnir máttu lúta í gras á Ljósvangi í Lissabon í kvöld. Uppskriftin var ekki ný af nálinni. Mark eftir fast leikatriði og leikmenn Liverpool náðu ekki að skora. Úrslitin þýða að róðurinn í seinni leiknum verður mjög þungur. Þar dugar ekkert nema sigur og hann verður að vera það stór að dugi. Það versta við tapið í kvöld var, að eins og stundum áður í tapleikjum sem þessum, þá átti Liverpool aldrei að þurfa að tapa þessum leik.

Leikurinn í kvöld var mjög svo tíðindalítill. Liverpool lék, eins og svo oft á útivelli í Evrópukeppni, af mikilli yfirvegun. Vörnin gaf engin færi á sér og Jose Reina hafði lítið að gera í markinu. Miðjumenn Liverpool léku vel en eins og svo oft áður náðu sóknarmennirnir illa að koma sér í færi. Eina færi Benfica í fyrri hálfleik kom eftir stungusendingu sem Jose Reina náði með glæsilegu úthlaupi á undan Simao Sabrosa. Hinu megin skapaðist mest hætta þegar Marcelo Moretto markvörður Benfica missti af boltanum þegar Robbie Fowler sótti að markinu en enginn leikmanna Liverpool var nærri til að færa sér mistökin í nyt. Mohamed Sissoko varð að yfirgefa leikvöllinn í hálfleiknum eftir að einn leikmanna Benfica hafði sparkað framan í hann. Dietmar Hamann leysti hann af.

Liverpool byrjaði síðari hálfleikinn vel og Luis Garcia hefði átt að ná skoti á markið úr góðu færi en hann hitti boltann illa. Eftir um klukkutíma reyndi Petit að vippa yfir Jose af löngu færi en Spánverjinn var vandanum vaxinn. Heimamenn færðu sig aðeins upp á skaftið undir lokin en þó virtist aldrei vera mikil hætta á að þeir næðu marki. Rafael Benítez skipti þeim Djibril Cissé og Steven Gerrard inn á til að reyna að lífga upp á sóknarleikinn en skiptingarnar höfðu ekki mikið að segja. Steven gat ekki hafið leikinn vegna meiðsla en þau munu ekki hafa verið mjög alvarleg. Það var svo sex mínútum fyrir leikslok sem ógæfan dundi yfir. Benfica fékk aukaspyrnu rétt utan vítateigs. Petit sendi inn á teiginn og þar náði varnarmaðurinn Anderson Luisao að komast fram fyrir Sami Hyypia og skalla boltann í markið óverjandi fyrir Jose. Þetta var alveg hroðalegur endir á leik sem Liverpool átti aldrei að tapa. En endirinn tryggir þó rafmagnað andrúmsloft á Anfield Road þegar Benfica kemur þangað í heimsókn. Þá dugar ekkert nema að skora fleiri en eitt mark og kannski fleiri en tvö!

Benfica: Moretto, Alcides, Luisao, Anderson, Leo (Ricardo Rocha 87. mín.), Robert (Nelson 76. mín.), Petit, Beto (Karagounis 58. mín.), Manuel, Simao og Nuno Gomes. Ónotaðir varamenn: Quim, Mantorras, Karyaka og Marcel.

Mark Benfica: Anderson Luisao (84. mín.). 

Gult spjald: Beto.

Liverpool: Reina, Finnan, Carragher, Hyypia, Riise, Luis Garcia, Sissoko (Hamann 35. mín.), Alonso, Kewell, Morientes (Gerrard 78. mín.) og Fowler (Cissé 65. mín.). Ónotaðir varamenn: Dudek, Crouch, Traore og Warnock.

Gul spjöld: Luis Garcia og Dietmar Hamann.

Áhorfendur á Estadio da Luz: 65.000.

Rafael Benítez var mjög óánægður eftir leikinn. ,,Við spiluðum ekki mjög vel en ég er sannfærður um að við munum spila betur á Anfield. Ég get ekki ásakað leikmennina því þeir lögðu sig fram gegn góðum mótherjum en ég er kannski ekki ánægður með hvernig við lékum. Við ræddum um föst leikatriði fyrir leikinn og við vorum búnir að sjá svona aukaspyrnu á myndbandi. Þess vegna er ég ekki mjög ánægður."

Nýjustu fregnir af Mohamed Sissoko eru þær að hann fór ekki til Englands með félögum sínum. Sparkið sem hann fékk framan í sig olli því að hann meiddist á auga og meiðslin eru talin slæm. Hann verður á sjúkrahúsi í Lissabon í nótt og meiðslin verða könnuð betur á morgun. Tveir úr læknaliði Liverpool urðu eftir hjá Momo. Útlitið er sem sagt ekki gott með hann í bili.

 


TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan