Peningar í kassann!

Það koma stundum peningar í kassann fyrir sölur á leikmönnum þó svo félagið sem á hlut hafi ekki verið að selja. Liverpool fékk einmitt peninga núna í sumar þegar fyrrum leikmaður félagsins hafði vistaskipti.
Bobby Clark var seldur frá Red Bull Salzburg fyrr í sumar. Derby County keypti hann fyrir sex milljónir sterlingspunda. Um leið komu 1,2 milljónir inn á reikning Liverpool. Ástæðan var sú að þegar Liverpool seldi Bobby til austurríska liðsins sumarið 2024, fyrir tíu milljónir punda, var kveðið á um að Liverpool fengi 17,5% ef Bobby yrði seldur til annars félags.
Bobby spilaði 25 leiki fyrir Red Bull Salzburg og skoraði eitt mark á fyrstu leiktíð sinni. En lengri varð ferill hans ekki í Austurríki því fyrir ári síðan var hann lánaður til Derby County. Þar náði hann að láta að sér kveða, lék 45 leiki og skoraði fjögur mörk. Derby, sem spilar í næst efstu deild, vildi fá hann fyrir fullt og fast og það gekk eftir fyrr í sumar.

Bobby Clark er 21. árs. Hann spilaði 14 leiki með Liverpool og skoraði einu sinni. Hann varð Deildarbikarmeistari með Liverpool 2024. Það verður áhugavert að sjá hvernig Bobby gengur hjá Derby.
-
| Sf. Gutt
Ég reyni að gera mitt besta! -
| Sf. Gutt
Þurfum að bæta margt! -
| Sf. Gutt
Mohamed Salah gengur til liðs við Trabzonspor! -
| Sf. Gutt
Rétt skef! -
| Sf. Gutt
Vill láta meira til sín taka! -
| Sf. Gutt
Nýr varabúningur vígður! -
| Sf. Gutt
Fleiri æfingaleikir -
| Sf. Gutt
Jeremy ekki enn búinn að ná sér! -
| Sf. Gutt
Joe Gomez úr leik! -
| Sf. Gutt
Freddie Woodman fær nýjan samning!

