Jürgen Klopp í ábyrgðarmiklu hlutverki!

Jürgen Klopp brá fyrir í beinni sjónvarpsútsendingu í dag. Hann er nú staddur á Vetrarólympíuleikunum á Ítalíu og fékk þar ábyrgðarmikið hlutverk við framkvæmd boðgöngu í skíðaskotfimi.
Þjóðverjinn hringdi bjöllunni í 4x7,5 kílómetra boðgöngu karla í skíðaskotfimi. Hringingin gaf til kynna að keppendur ættu einn hring eftir í mark.
Jürgen Klopp er skíðaáhugamaður og kom um árið í skíðaferð til Íslands sem hann sagði hafa verið mikla upplifun. Hann var, ef rétt er vitað norður í Fljótum.
Þess má geta að Frakkar unnu boðgönguna. Norðmenn voru í öðru sæti og Svíar í þriðja. Þjóðverjar voru fjórðu. Keppnin var í beinni útsendingu í Ríkisútvarpinu.
Vetrarólympíuleikunum á Ítalíu standa nú yfir. Þeir eru opinberlega kenndir við Mílanó og Cortina d'Ampezzo. Einnig er keppt á fleiri stöðum á noður Ítalíu.
Hér má sjá okkar mann hringja bjöllunni góðu í dag. Fréttin er tekin af vefsíðunni Fotbolti.net.
-
| Sf. Gutt
Merkur áfangi hjá fyrirliðanum! -
| Sf. Gutt
Draumar geta orðið að veruleika! -
| Sf. Gutt
Þrír lykilmenn fjarri góðu gamni! -
| Sf. Gutt
Af kvennaliðinu -
| Sf. Gutt
Hann kenndi mér mjög margt! -
| Sf. Gutt
Virgil van Dijk með 100 landsleiki! -
| Sf. Gutt
Andrew Robertson með 100 landsleiki! -
| Sf. Gutt
Leikjatilfærslur -
| Sf. Gutt
Tveir komnir fyrr heim! -
| Sf. Gutt
Í minningu Bill Shankly

