Býst við hinu versta!

Arne Slot býst við hinu versta hvað varðar meiðsli Wataru Endo. Hann var borinn af velli á miðvikudagskvöldið í Sunderland þegar Liverpool vann seiglusigur þar.
Wataru meiddist á fæti og Arne á von á því að hann verði drjúgan tíma frá. Ekki er búið að skera úr um hversu lengi Japaninn verður frá en í versta falli gæti hann verið búinn að spila sinn síðasta leik á leiktíðinni.

Meiðsli hans koma á versta tíma fyrir Wataru því hann spilaði stórvel á móti Sunderland. Hann er bara búinn að spila átta leiki á leiktíðinni.
-
| Mummi
Miðasala á Liverpool leik -
| Sf. Gutt
Allt samkvæmt áætlun! -
| Sf. Gutt
Þrír lykilmenn fjarri góðu gamni! -
| Sf. Gutt
Verður leiknum frestað? -
| Sf. Gutt
Til hamingju! -
| Sf. Gutt
Giovanni Leoni á enn eitthvað í land -
| Sf. Gutt
Merkur áfangi hjá fyrirliðanum! -
| Sf. Gutt
Draumar geta orðið að veruleika! -
| Sf. Gutt
Þrír lykilmenn fjarri góðu gamni! -
| Sf. Gutt
Af kvennaliðinu

