| Sf. Gutt

Fulltrúar Liverpool á EM


Úrslitakeppni Evrópumóts landsliða fer fram í Þýskalandi núna í sumar. Kynning á fulltrúum Liverpool hefst hér og nú. Andy Robertson ríður á vaðið!


Nafn: Andrew Robertson.

Fæðingardagur:
 11. mars 1994.

Fæðingarstaður: Glasgow í Skotlandi.

Staða: Vinstri bakvörður. 

Félög á ferli: Queen's Park (2012-13), Dundee United (2013-14), Hull City (2014-17) og Liverpool (2017-??). 


Fyrsti landsleikur: 5. mars 2014 gegn Póllandi.

Landsleikjafjöldi:
71.

Landsliðsmörk: 3.


Leikir með Liverpool: 297.

Mörk fyrir Liverpool: 11.

Hvernig gekk á síðustu leiktíð? Andrew spilaði vel en þó ekki alveg jafn vel og stundum áður. Helsta skýringin er sú að Andrew fór úr axlarlið í fyrrahaust og var frá í þrjá mánuði. Það tók Skotann tíma að finna taktinn aftur en það tókst.


Hver eru helstu einkenni okkar manns? Andrew er eldfljótur og þindarlaus. Fyrirgjafir hans eru magnaðar og hann hefur lagt upp fjölda marka síðustu árin. 

Hver er staða Andrew í landsliðinu? Hann hefur verið fastamaður í áratug og er fyrirliði liðsins. Algjör lykilmaður Skota.


Hvað um Skotland?  Skotland komst loksins í lokakeppni á stórmóti eftir langt hlé þegar EM fór fram síðast. Liðið er gott en ekki eitt af bestu liðum keppninnar. Liðið er skipað harðskeyttum leikmönnum og þeir munu selja sig dýrt.

Vissir þú? Andrew hefur haldið með Celtic barnæsku og æfði með liðinu þegar hann var strákur. Hann var látinn fara frá Celtic vegna þess að hann þótti svo smávaxinn. 

Helsta heimild: http://www.lfchistory.net.


TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan