| Sf. Gutt

Dregið í FA bikarnum


Fyrr í kvöld var dregið til átta liða úrslita í FA bikarnum. Eftir leiki kvöldsins liggur fyrir hvaða lið leika saman. Liverpool mætir Manchester United og fer leikurinn fram á Old Trafford helgina 16. og 17. mars. Leiktími verður staðfestur á næstu dögum. 

Bæði lið komust áfram í átta liða úrslit FA bikarsins í kvöld. Liverpool vann Southampton 3:0 á Anfield Road. Manchester United tryggði sitt sæti með því að vinna Nottingham Forest 0:1 í Nottingham. 

Liverpool átti að leika við Everton á Goodison Park helgina sem átta liða úrslit FA bikarsins fara fram. Leiknum hefur af þeim sökum verið frestað. 

TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan