| Sf. Gutt

Merkilegur leikur!


Óhætt er að segja að Evrópuleikur Liverpool í Frakklandi á morgun sé merkilegur. Hann er númer 150 í Evrópusögu Liverpool Football Club. Liverpool hefur unnið 81 af þeim 149 leikjum sem að baki eru.

Leikirnir sem um ræðir eru í Fairs bikarnum, Evrópukeppni félagsliða og Evrópudeildinni. Þessar þrjár keppnir eru undir sama hatti. Liverpool hefur unnið keppnina þrisvar sinnum. Leikir í Evrópukeppni meistaraliða, Meistaradeildinni og Stórbikar Evrópu eru ekki með í þessu.



Svo er leikurinn líka merkilegur fyrir þær sakir að þetta verður 450. leikurinn á valdatíð Jürgen Klopp. Liverpool hefur unnið 278 af leikjunum 449 sem hingað til hafa verið á valdatíma Þjóðverjans.

TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan