| Sf. Gutt

Layton Stewart yfirgefur Liverpool

Layton Stewart

Ungliðinn Layton Stewart hefur yfirgefið Liverpool. Hann er búinn að gera samning við Preston North End sem leikur í næst efstu deild. Layton var seldur en ekki hefur verið gefið upp hvað Liverpool fær fyrir hann.  

Layton, sem verður 21. árs í haust, hóf sjö ára að æfa með Liverpool. Hann lék með öllum yngri liðum félagsins og skoraði drjúgt af mörkum. Layton, sem er framherji, spilaði sinn fyrsta og eina leik fyrir aðallið Liverpool í Deildarbikarnum á móti Derby County á síðasta keppnistímabili. 

Liverpool klúbburinn óskar Layton góðs gengis og þakkar honum fyrir sitt framlag til félagsins. 

TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan