| Sf. Gutt
Jordan Henderson, fyrirliði Liverpool, skoraði gullfallegt sigurmark 3:2 gegn AC Milan í gærkvöldi. Hann sagði að það hefði verið mjög gaman að komast aftur á markalistann en þetta var fyrsta mark hans á keppnistímabilinu. Það sem meira var að þetta var fyrsta mark Jordan fyrir Liverpool frá því í desember í fyrra!
,,Já, það var mjög gaman að komast aftur á markalistann. Það er nokkuð síðan að ég skoraði síðast og það er alltaf gaman að skora. Ef ég fer að spila aðeins framar á vellinum þá held ég að ég þurfi að reyna að skora af og til. Það var gaman að komast á markalistann og ná að skora sigurmarkið í leiknum."
,,Þetta var góður leikur. Eiginlega rússibanaferð og ég er viss um að hlutlausum áhorfendum fannst gaman að horfa á leikinn. Það var gaman að hafa aftur áhorfendur á Evrópukvöldi á Anfield. Þegar upp var staðið var þetta ótrúlegur leikur!"
Liverpool byrjaði Evrópuvegferðina stórvel með sigri á AC Milan þó svo að ítalska liðið kæmist aftur inn í leikinn og næði að jafna eftir mikla yfirburði Liverpool framan af. Jordan Henderson gaf það ekki eftir og tryggði Liverpool sigur. Knattspyrnusamband Evrópu valdi hann Mann leiksins.
TIL BAKA
Mjög gaman að komast á markalistann!

Nýlegar fréttir
-
| Sf. Gutt
Allt hefur gerst rosalega hratt! -
| Sf. Gutt
Bandaríkjamarkaður er mjög mikilvægur! -
| Sf. Gutt
Af leikmannamálum -
| Sf. Gutt
Ætlum að vera tilbúnir í fyrsta leik! -
| Sf. Gutt
Leikjatilfærslur -
| Sf. Gutt
Mikið verk fyrir höndum! -
| Sf. Gutt
Drjúg leið að landi! -
| Sf. Gutt
Ronald Araujo fenginn að láni! -
| Sf. Gutt
Ég reyni að gera mitt besta! -
| Sf. Gutt
Þurfum að bæta margt!
Fréttageymslan