| Sf. Gutt
TIL BAKA
Landsleikjafréttir
Landsleikjahrotunni er lokið. Einn fulltrúi Liverpool skoraði og ungliðinn sem aldrei hefur spilað opinberan leik fyrir félagið heldur áfram að spila landsleiki.
Grikkir unnu Svía 2:1 í Aþenu í gærkvöldi. Kostas Tsimikas spilaði allan leikinn.
Ungliðinn Conor Bradley lék sinn þriðja landsleik og heldur áfram að safna landsleikjum þó hann hafi enn ekki leikið opinberan leik með Liverpool. Hann kom inn á sem varamaður þegar Norður Írar gerðu jafntefli án marka á móti Sviss.
England gerði 1:1 jafntefli í Póllandi. Jordan Henderson og Trent Alexander-Arnold voru varamenn og komu ekki við sögu.
Á þriðjudagskvöldið skoraði Diogo Jota eitt marka Portúgals sem unnu 0:3 í Aserbaísjan. Þetta var áttunda landsliðsmark hans.
Virgil van Dijk var fyrirliði Hollands sem vann stórsigur á Tyrklandi 6:1. Ozan Kabak, fyrrum lánsmaður Liverpool, var í liði Tyrkja.
Andrew Robertson leiddi Skotland til sigurs á móti Austurríki. Skotar unnu 0:1 á útivelli.
Sadio Mané skoraði úr víti þegar Senegal vann Kongó 3:1. Hann er nú orðinn næstmarkahæstur í landsliðssögu Senegal. Sadio hefur skorað 25 mörk. Henri Camara er efstur á blaði með 29 mörk.

Nýlegar fréttir
-
| Sf. Gutt
Líkt og ólíkt! -
| Sf. Gutt
Andrew Robertson hylltur! -
| Sf. Gutt
Joe Gomez orðinn góður! -
| Sf. Gutt
Alvaro Arbeloa á Anfield! -
| Sf. Gutt
Af spjöldum sögunnar! -
| Sf. Gutt
Tilkynnt um nýjan aðalstyrktaraðila! -
| Sf. Gutt
Reyni að gera mitt allra besta alla daga! -
| Sf. Gutt
Liverpool kaupir ungan franskan framherja! -
| Sf. Gutt
Richard Hughes lætur af störfum -
| Sf. Gutt
Alisson kominn upp í fjórða sæti!
Fréttageymslan