| HI
Joel Matip fór meiddur af velli í leiknum gegn West Brom í kvöld. Þá missir Naby Keita einnig af næstu leikjum vegna meiðsla.
Matip haltraði af velli um miðjan seinni hálfleik í gær og er talið að meiðslin séu í svokölluðum aðfærsluvöðva við liðamót í fætinum. Hann fer í myndatöku í dag þar sem staðan á honum verður metin em Klopp sagði á blaðamannafundi eftir leikinn í gær að þetta liti ekki vel út.
Matip hefur þegar misst af meira en helmingi tímabilsins vegna meiðsla, nú síðast meiddist hann á baki gegn Fulham sem varð til þess að hann missti af sigurleiknum gegn Tottenham.
Naby Keita varð fyrir vöðvatognun á æfingu og var þess vegna ekki í hópnum í leiknum í gær. Klopp segir að hann muni líka missa af leiknum gegn Newcastle á miðvikudaginn en að öðru leyti sé óljóst hversu lengi hann verður frá.
TIL BAKA
Matip og Keita meiddir
Joel Matip fór meiddur af velli í leiknum gegn West Brom í kvöld. Þá missir Naby Keita einnig af næstu leikjum vegna meiðsla.Matip haltraði af velli um miðjan seinni hálfleik í gær og er talið að meiðslin séu í svokölluðum aðfærsluvöðva við liðamót í fætinum. Hann fer í myndatöku í dag þar sem staðan á honum verður metin em Klopp sagði á blaðamannafundi eftir leikinn í gær að þetta liti ekki vel út.
Matip hefur þegar misst af meira en helmingi tímabilsins vegna meiðsla, nú síðast meiddist hann á baki gegn Fulham sem varð til þess að hann missti af sigurleiknum gegn Tottenham.
Naby Keita varð fyrir vöðvatognun á æfingu og var þess vegna ekki í hópnum í leiknum í gær. Klopp segir að hann muni líka missa af leiknum gegn Newcastle á miðvikudaginn en að öðru leyti sé óljóst hversu lengi hann verður frá.
Nýlegar fréttir
-
| Sf. Gutt
Merkur áfangi hjá fyrirliðanum! -
| Sf. Gutt
Draumar geta orðið að veruleika! -
| Sf. Gutt
Þrír lykilmenn fjarri góðu gamni! -
| Sf. Gutt
Af kvennaliðinu -
| Sf. Gutt
Hann kenndi mér mjög margt! -
| Sf. Gutt
Virgil van Dijk með 100 landsleiki! -
| Sf. Gutt
Andrew Robertson með 100 landsleiki! -
| Sf. Gutt
Leikjatilfærslur -
| Sf. Gutt
Tveir komnir fyrr heim! -
| Sf. Gutt
Í minningu Bill Shankly
Fréttageymslan

