| Sf. Gutt
Á dögunum var hér greint frá gjafmildi Mohamed Salah á heimaslóðum. Sadio Mané hefur líka látið stórfé af hendi rakna í heimahögum sínum.
Sadio er frá héraðinu Sedhiou í Senegal. Hann ólst upp í þorpinu Bambaly við kröpp kjör. Mikil fátækt er á svæðinu og Sadio hefur gert sitt til að hjálpa fólkinu. Hann fjármagnaði byggingu skóla í fyrra og á næstu mánuðum verður opnað sjúkrahús sem hann hefur líka kostað. Að auki hefur verið byggður knattspyrnuvöllur sem Sadio borgaði fyrir. Sadio hefur líka látið fé af hendi rakna vegna útbreiðslu kórónaveirunnar á heimaslóðum sínum.
Bæði Sadio Mané og Mohamed Salah hafa látið verkin tala á heimslóðum sínum þar sem fólk býr við skort. Óhætt er að segja að þeir sé til fyrirmyndar í því að rétta þeim hjálparhönd sem með þurfa!
TIL BAKA
Af gjafmildi Sadio Mané

Nýlegar fréttir
-
| Sf. Gutt
Af EM -
| Sf. Gutt
Bara Real Madrid! -
| Sf. Gutt
Þrír Evrópumeistarar! -
| Sf. Gutt
Æfingaleikir sumarsins -
| Sf. Gutt
Annar nýr markmaður -
| Sf. Gutt
Milos Kerkez kominn til Liverpool -
| Sf. Gutt
Nathaniel Phillips heldur á braut -
| Sf. Gutt
Skjaldarleikurinn liggur fyrir! -
| Sf. Gutt
Florian Wirtz keyptur fyrir metfé! -
| Sf. Gutt
Vitezslav Jaros lánaður
Fréttageymslan