| Sf. Gutt
Það er allt eða ekkert í Salzburg annað kvöld þegar Liverpool mætir heimamönnum þar. Liverpool má ekki tapa því þá er liðið úr Meistaradeildinni og fer í Evrópudeildina. Heimamenn þurfa sigur en Liverpool nægir jafntefli og með sigri vinna Evrópumeistararnir riðilinn. Napoli vinnur riðilinn trúlega ef Liverpool nær ekki sigri því ítalska liðið á heimaleik á móti Genk á sama tíma og Liverpool spilar í Austurríki.
Ljóst er að verkefni Liverpool er mjög erfitt því austurrísku meistararnir eru með magnað lið sem vinnur flesta sína leiki í heimalandi sínu. Það er því mikið sjálfstraust í liðinu. Liverpool vann fyrri leik liðanna 4:3 eftir að hafa komist í 3:0. En Red Bull Salzburg jafnaði áður en Liverpool náði sigurmarki. Liverpool mun þurfa á ölu sínu að halda en vonandi nær liðið því sem til þarf!
TIL BAKA
Allt eða ekkert!

Nýlegar fréttir
-
| Sf. Gutt
Giovanni Leoni á enn eitthvað í land -
| Sf. Gutt
Merkur áfangi hjá fyrirliðanum! -
| Sf. Gutt
Draumar geta orðið að veruleika! -
| Sf. Gutt
Þrír lykilmenn fjarri góðu gamni! -
| Sf. Gutt
Af kvennaliðinu -
| Sf. Gutt
Hann kenndi mér mjög margt! -
| Sf. Gutt
Virgil van Dijk með 100 landsleiki! -
| Sf. Gutt
Andrew Robertson með 100 landsleiki! -
| Sf. Gutt
Leikjatilfærslur -
| Sf. Gutt
Tveir komnir fyrr heim!
Fréttageymslan