| Grétar Magnússon
TIL BAKA
Dominic Solanke til Bournemouth
Nokkuð óvænt var tilkynnt rétt í þessu að Dominic Solanke hefur gengið til liðs við Bournemouth.
Framherjinn ungi hefur verið leikmaður Liverpool síðustu 18 mánuði og spilað alls 27 leiki. Hann skoraði eitt mark í þessum leikjum en það kom á lokadegi síðasta tímabils á Anfield gegn Brighton.
Kaupverðið er talið vera í kringum 19 milljónir punda sem verður að teljast ágætt verð. Solanke hefur því miður ekki fengið mörg tækifæri hjá Liverpool þar sem samkeppni um framherja stöðurnar hefur verið ansi hörð undanfarið.
Við óskum Solanke góðs gengis hjá nýju félagi.

Nýlegar fréttir
-
| Sf. Gutt
Verður leiknum frestað? -
| Sf. Gutt
Til hamingju! -
| Sf. Gutt
Giovanni Leoni á enn eitthvað í land -
| Sf. Gutt
Merkur áfangi hjá fyrirliðanum! -
| Sf. Gutt
Draumar geta orðið að veruleika! -
| Sf. Gutt
Þrír lykilmenn fjarri góðu gamni! -
| Sf. Gutt
Af kvennaliðinu -
| Sf. Gutt
Hann kenndi mér mjög margt! -
| Sf. Gutt
Virgil van Dijk með 100 landsleiki! -
| Sf. Gutt
Andrew Robertson með 100 landsleiki!
Fréttageymslan