| Grétar Magnússon
TIL BAKA
Firmino með nýjan samning
Þær gleðifregnir bárust í dag að Brasilíumaðurinn Roberto Firmino hefur skrifað undir nýjan langtíma samning við Liverpool FC.
Firmino brosti sínu breiðasta eins og sjá má á meðfylgjandi mynd og sagði af þessu tilefni: ,,Þetta var auðveld ákvörðun. Félagið hefur tekið á móti mér á ótrúlegan hátt og hér hef ég vaxið sem leikmaður með stuðningi alls liðsins. Ég er mjög, mjög ánægður hér."
,,Allt passar á sem bestan máta. Liðsfélagar mínir eru stórkostlegir og ég er mjög þakklátur fyrir að geta spilað með þeim hjá þessu félagi. Ég elska að spila fyrir Liverpool FC. Stuðningsmennirnir eru frábærir og styðja liðið á stórkostlegan hátt alla leið. Þeir styðja okkur í leikjum og það sem þeir gera fyrir leikina er fallegt."
Firmino kom til félagsin frá þýska félaginu Hoffenheim sumarið 2015 og hefur síðan þá spilað 140 leiki fyrir Liverpool og skorað 50 mörk. Hann er að eiga sitt besta tímabil á ferlinum til þessa en hingað til hefur hann skorað 27 mörk í öllum keppnum en alls eru leikirnir á tímabilinu orðnir 50 talsins.

Nýlegar fréttir
-
| Sf. Gutt
Vann öll skallaeinvígi í leiknum -
| Sf. Gutt
Joel Matip alvarlega meiddur -
| Sf. Gutt
Baráttusigur! -
| Sf. Gutt
Af kvennaliðinu -
| Sf. Gutt
Erfitt verkefni! -
| Sf. Gutt
Slæmt tap varð að sætum sigri á 81 sekúndu! -
| Sf. Gutt
Farseðill upp á lengri Evrópuvegferð tryggður! -
| Mummi
Miðasala á Liverpool – Manchester United og félagakerfi -
| Sf. Gutt
Aldarfjórðungur frá frumraun Steven Gerrard -
| Sf. Gutt
Tveir í viðbót á meiðslalistann
Fréttageymslan