| Grétar Magnússon
TIL BAKA
Tap gegn Roma
Síðasti æfingaleikur liðsins í Bandaríkjunum endaði með tapi gegn AS Roma 1-2 á Busch Stadium í St Louis borg.

Byrjunarlið Liverpool var þannig skipað: Manninger, Clyne, Lovren, Klavan, Milner, Can, Wijnaldum, Ojo, Mane, Firmino, Sturridge.
Fyrri hálfleikur var nokkuð fjörugur og bæði lið skiptust á að misnota fín færi. Roma menn nýttu sér það að Emre Can og Gini Wijnaldum voru að spila saman í fyrsta sinn á miðjunni og oft opnuðust stór svæði fyrir ítalska liðið til að nýta sér. Snemma leiks þurfti Manninger að vera vel vakandi og verja fínt skot frá Stephan El Shaarawy. Edin Dzeko fékk svo fína sendingu innfyrir en Clyne náði að loka á hann og skot hans fór yfir. Dzeko var svo aftur á ferðinni skömmu síðar er hann sneri á Lovren en skot hans hitti svo ekki á markið.
Sóknarlína Liverpool var einnig lífleg með þá Mane, Ojo og Firmino sem allir náðu góðu samspili með Sturridge fremstan. Sturridge komst einn í gegn eftir flott samspil með Mané en Alisson, markvörður Roma, varði skot hans. James Milner, sem byrjaði leikinn sem vinstri bakvörður var duglegur að sækja upp kantinn og hann átti nokkrar góðar fyrirgjafir frá vinstri sem sköpuðu hættu. Sturridge náði skalla að marki eftir sendingu Milner en Alisson var aftur vel á verði.
En eftir um hálftíma leik skoraði Edin Dzeko fyrsta mark leiksins er hann skaut hnitmiðuðu skoti í fjæhornið. Lovren hefði mátt gera betur þar en hann var ekki nógu fljótur að loka á Dzeko þegar hann fékk boltann. Leikmenn Liverpool brugðust vel við þessu og Sturridge átti skot sem var varið en rétt í blálokin á fyrri hálfleik jafnaði Ojo með skalla eftir hornspyrnu. Milner tók spyrnuna og Lovren skallaði boltann aftur inná markteig frá fjærstönginni og þar var Ojo einn og óvaldaður og skallaði boltann í markið.

Klopp gerði svo 10 breytingar á liðinu í hálfleik, sá eini sem hélt stöðu sinni var Wijnaldum en annars voru það þeir Mignolet, Alexander-Arnold, Wisdom, Stewart, Moreno, Henderson, Markovic, Lallana, Coutinho og Ings sem komu inná.
Spilamennska liðsins breyttist til hins verra í seinni hálfleik enda virtust leikmenn vera þreyttir bæði andlega og líkamlega eftir erfiðar og miklar æfingatarnir í Bandaríkjunum. Það voru aðallega þeir Coutinho og Danny Ings sem voru líflegir en þeir sköpuðu þó ansi litla hættu. Mohamed Salah skoraði svo eina mark síðari hálfleiks eftir um það bil klukkustundar leik og var það frekar slysalegt. Florenzi sendi boltann fyrir og Dzeko var óvaldaður á teignum og skallaði boltann að marki. Mignolet varði vel en sló boltann beint út í markteig þar sem hvorki hann sjálfur né Wisdom voru nógu snöggir að bregðast við og Salah sendi boltann í markið.
Ings komst næst því að jafna metin með skalla eftir aukaspyrnu frá Brannagan, sem kom inná sem varamaður fyrir Wijnaldum á 70. mínútu, en Allison í marki Roma var enn og aftur vel á verði.
Undir lok leiksins meiddist svo Moreno og Randall kom inná fyrir hann. Klopp sagði eftir leik að meiðsli Moreno væru ekki alvarleg og það er eins gott því að hann er eini vinstri bakvörðurinn sem félagið á um þessar mundir. Fleiri leikmenn misstu af þessum leik vegna meiðsla, Marko Grujic var ekki með vegna heilahristings, Ovie Ejaria er meiddur á nára og Mamadou Sakho, Joe Gomez og Lucas eru einnig fyrir á þessum lista. Joel Matip spilaði svo ekkert af leikjum liðsins í Bandaríkjunum þar sem hann á við meiðsli í fæti að stríða og Divock Origi kom ekki við sögu gegn Roma þar sem hann er smávægilega meiddur á nára. Varla þarf svo að minnast á að nýjasti markvörður félagsins, Loris Karius er handarbrotinn.
Hér má sjá myndir úr leiknum.

Nýlegar fréttir
-
| Sf. Gutt
Milos Kerkez kominn til Liverpool -
| Sf. Gutt
Nathaniel Phillips heldur á braut -
| Sf. Gutt
Skjaldarleikurinn liggur fyrir! -
| Sf. Gutt
Florian Wirtz keyptur fyrir metfé! -
| Sf. Gutt
Vitezslav Jaros lánaður -
| Sf. Gutt
Leikjadagskráin birt -
| Sf. Gutt
Ungliðar á braut -
| Sf. Gutt
Það fengust peningar fyrir Trent -
| Sf. Gutt
Af leikmannamálum -
| Sf. Gutt
Liverpool kaupir ungan markmann
Fréttageymslan