| Sf. Gutt

Nathaniel Phillips heldur á braut

Nathaniel Phillips hefur yfirgefið Liverpool. Hann gekk til liðs við West Bromwich Albion sem leikur í næst efstu deild. Hermt er að Liverpool hafi fengið þrjár milljónir sterlingspunda fyrir miðvörðinn.

Nathaniel kom til Liverpool 2016 en hann ólst upp hjá Bolton Wanderes. Á leiktíðinni 2019/20 var hann í láni hjá þýska liðinu Stuttgart. Þar gat hann sér gott orð og aðstoðaði við að koma liðinu upp í efstu deild. Á þessari leiktíð kom hann reyndar um tíma heim til Liverpool og spilaði sinn fyrsta leik í janúar 2020.

Nathaniel lék stórt og mikilvægt hlutverk á lokakafla leiktíðarinnar 2020/21. Miðverðir Liverpool heltust hver á fætur öðrum úr lestinni vegna meiðsla á leiktíðinni og þar kom að ungliðarnir Nathaniel og Rhys Williams voru komnir saman í hjarta varnarinnar. Þeir stóðu sig með sóma síðustu vikur leiktíðarinnar. Liverpool náði Meistaradeildarsæti og þeir félagar fengu mikið hrós. Nathaniel lék 20 leiki og skoraði sitt fyrsta mark fyrir félagið.

Á leiktíðinni 2021/22 lék hann bara þrjá leiki. Í janúar var hann svo lánaður til Bounemouth. Hann lagði sitt af mörkum til að hjálpa liðinu upp í efstu deild um vorið.

Nathaniel var lánaður til Celtic í ágúst 2022. Hann spilaði ekki mjög mikið þar og kom til baka heim til Liverpool. Eftir áramót lék hann sem lánsmaður með Cardiff City. Á nýliðinni leiktíð var Nathaniel í láni hjá Derby County. Hann þótti standa sig mjög vel með liðinu. 

Nathaniel Phillips lék alls 29 leiki með Liverpool. Hann skoraði eitt mark og lagði sömuleiðis upp eitt. Hann lék einn leik með Liverpool í Deildarbikarnum á keppnistímabilinu 2021/22. Liverpool vann Deildarbikarinn á því keppnistímabili og hann fékk verðlaunapening fyrir.

Liverpool klúbburinn á Íslandi þakkar Nathaniel fyrir framlag sitt til Liverpool og óskar honum alls góðs í framtíðinni. 

 

TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan