| Sf. Gutt

Af leikmannamálum

Tveir leikmenn eru komnir til Liverpool og tveir eru næstum því komnir ef marka má fjölmiðla. Tveir eru nú þegar farnir. En fara fleiri?

Jeremie Frimpong og Armin Pecsi hafa skrifað undir samninga við Liverpool. Næsta víst er að Florian Wirtz gengur til liðs við Liverpool hvern næsta dag og það sama má segja um Milos Kerkez. 

Trent Alexander-Arnold er farinn og það sama má segja um Caoimhin Kelleher. En gætu fleiri farið? Hér eru nokkrir nefndir sem gætu verið á förum.

Óvænt eru komnar fréttir á loft um að Atletico Madrid hafi áhuga á Andrew Robertson. Það myndi vera slæmt að missa Andrew þó svo Milos sé hugsaður í stöðu vinstri bakvarðar. Skotinn er frábær og auk þess mikill leiðtogi. 

Kostas Tsimikas hefur verið orðaður við brottför. Það gæti þó ekkert orðið af því ef Andrew fer. 

Margir telja að Darwin Núnez fari í sumar. Í byrjun árs vildi Al Nassr í Sáudi Arabíu fá hann en hann vildi ekki fara frá Liverpool. Það er spurning hvað gerist í sumar. 

Talið er að Harvey Elliott sé til sölu ef áhugi verður á honum. Hann vill berjast fyrir sæti sínu í liðinu og langar ekki í burtu. 

Ekki er ósennilegt að Federico Chiesa sé falur ef áhugi verður á honum. Líklegt er talið að félög á Ítalíu muni reyna að kaupa hann. 

Barcelona virðist ætla að gera atlögu að því að fá Luis Díaz til liðs við sig. Forráðamenn Liverpool vilja alls ekki missa Kólumbíumanninn. 

Við sjáum hvað setur!

 

TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan