| Sf. Gutt
Tveir leikmenn Liverpool, sem hafa leikið lykilhlutverk síðustu vikur, eru meiddir og taka ekki þátt í stórleiknum á móti Tottenham. Um er að ræða Lucas Leiva og Raheem Sterling. Báðir fóru af velli á móti Everton um helgina.
Lucas mun vera meiddur á nára og gæti hann verið frá verkum í meira en mánuð. Brasilíumaðurinn hefur leikið gríðarlega vel aftarlega á miðjunni en betra gengi liðsins hefur haft mikið með hversu vel hann hefur verið að spila.
Raheem fékk spark á annan fótinn á móti Everton og ekki er ljóst hversu alvarleg meiðslin eru. Það er þó talið öruggt að hann spili ekki í kvöld. Vonandi eru meiðslin ekki alvarleg.
Leikurinn á móti Tottenham í kvöld er gríðarlega mikilvægur. Það munar fjórum stigum á liðunum og Liverpool þarf nauðsynlega á sigri að halda til að herja á fjögur efstu sætin í deildinni. Þeir sem leysa Lucas og Raheem af verða nú að standa í fæturnar í kvöld!
TIL BAKA
Tveir lykilmenn meiddir
Tveir leikmenn Liverpool, sem hafa leikið lykilhlutverk síðustu vikur, eru meiddir og taka ekki þátt í stórleiknum á móti Tottenham. Um er að ræða Lucas Leiva og Raheem Sterling. Báðir fóru af velli á móti Everton um helgina.Lucas mun vera meiddur á nára og gæti hann verið frá verkum í meira en mánuð. Brasilíumaðurinn hefur leikið gríðarlega vel aftarlega á miðjunni en betra gengi liðsins hefur haft mikið með hversu vel hann hefur verið að spila.
Raheem fékk spark á annan fótinn á móti Everton og ekki er ljóst hversu alvarleg meiðslin eru. Það er þó talið öruggt að hann spili ekki í kvöld. Vonandi eru meiðslin ekki alvarleg.
Leikurinn á móti Tottenham í kvöld er gríðarlega mikilvægur. Það munar fjórum stigum á liðunum og Liverpool þarf nauðsynlega á sigri að halda til að herja á fjögur efstu sætin í deildinni. Þeir sem leysa Lucas og Raheem af verða nú að standa í fæturnar í kvöld!
Nýlegar fréttir
-
| Mummi
Miðasala á Liverpool leik -
| Sf. Gutt
Allt samkvæmt áætlun! -
| Sf. Gutt
Þrír lykilmenn fjarri góðu gamni! -
| Sf. Gutt
Verður leiknum frestað? -
| Sf. Gutt
Til hamingju! -
| Sf. Gutt
Giovanni Leoni á enn eitthvað í land -
| Sf. Gutt
Merkur áfangi hjá fyrirliðanum! -
| Sf. Gutt
Draumar geta orðið að veruleika! -
| Sf. Gutt
Þrír lykilmenn fjarri góðu gamni! -
| Sf. Gutt
Af kvennaliðinu
Fréttageymslan

