| Sf. Gutt
Þeir Mario Balotello og Glen Johnson eru báðir meiddir og verða ekki til taks þegar Liverpool mætir Bournemouth í Deildarbikarnum á morgun.
Glen fór meiddur af velli á móti Manchester United um helgina. Búist er við því að hann verði frá leik í allt að mánuð.
Mario kom á hinn bóginn inn á sem varamaður eftir að hafa verið meiddur síðustu vikurnar. Nú má velta því fyrir sér hvort Mario hafi verið sendur of snemma til leiks en það kom nokkuð á óvart að hann skyldi vera í liðshópnum fyrir leikinn í Manchester. Báðir eru þeir Mario og Glen meiddir á nára.
Eftir því sem Brendan Rodgers sagði á blaðamannafundi í dag þá eru aðrir leikmenn Liverpool leikfærir. Undanskilinn er þó Jon Flanagan en hann hefur verið meiddur frá því í sumar.
TIL BAKA
Mario og Glen meiddir
Þeir Mario Balotello og Glen Johnson eru báðir meiddir og verða ekki til taks þegar Liverpool mætir Bournemouth í Deildarbikarnum á morgun.Glen fór meiddur af velli á móti Manchester United um helgina. Búist er við því að hann verði frá leik í allt að mánuð.
Mario kom á hinn bóginn inn á sem varamaður eftir að hafa verið meiddur síðustu vikurnar. Nú má velta því fyrir sér hvort Mario hafi verið sendur of snemma til leiks en það kom nokkuð á óvart að hann skyldi vera í liðshópnum fyrir leikinn í Manchester. Báðir eru þeir Mario og Glen meiddir á nára.
Eftir því sem Brendan Rodgers sagði á blaðamannafundi í dag þá eru aðrir leikmenn Liverpool leikfærir. Undanskilinn er þó Jon Flanagan en hann hefur verið meiddur frá því í sumar.
Nýlegar fréttir
-
| Sf. Gutt
Allt hefur gerst rosalega hratt! -
| Sf. Gutt
Bandaríkjamarkaður er mjög mikilvægur! -
| Sf. Gutt
Af leikmannamálum -
| Sf. Gutt
Ætlum að vera tilbúnir í fyrsta leik! -
| Sf. Gutt
Leikjatilfærslur -
| Sf. Gutt
Mikið verk fyrir höndum! -
| Sf. Gutt
Drjúg leið að landi! -
| Sf. Gutt
Ronald Araujo fenginn að láni! -
| Sf. Gutt
Ég reyni að gera mitt besta! -
| Sf. Gutt
Þurfum að bæta margt!
Fréttageymslan

