Jordan Henderson meiddur!
Jordan Henderson haltraði út af vellinum á æfingu enska landsliðsins í gær. Hann er meiddur á ökkla, en vonast er til að meiðslin séu smávægileg.
Það ætlar ekki af enskum landsliðsmönnum Liverpool að ganga. Í síðustu viku meiddist Daniel Sturridge og verður frá í einhverjar vikur af þeim sökum og í gær varð Jordan Henderson fyrir hnjaski.
Jordan Henderson hefur aldrei misst af leik hjá Liverpool vegna meiðsla og það er svo sem ekki loku fyrir það skotið að hann verði klár í slaginn gegn Aston Villa á laugardaginn. Í það minnsta er alveg klárt að Brendan Rodgers krossar fingur og vonar það besta, því Henderson hefur verið einn traustasti maður liðsins að undanförnu.
Englendingar mæta Sviss í kvöld í fyrsta leik sínum í undankeppni EM og samkvæmt fregnum úr herbúðum landsliðsins er talið ólíklegt að Henderson sé í standi til þess að spila í kvöld.
-
| Sf. Gutt
Dagurinn sem breytti Liverpool F.C.! -
| Sf. Gutt
Vera með í baráttunni fram í janúar! -
| Sf. Gutt
Ekki spá í treyjunar! -
| Sf. Gutt
Fágætt afrek hjá Caoimhin Kelleher! -
| Sf. Gutt
Evrópumeistararnir teknir í gegn! -
| Sf. Gutt
Það styttist í sigur! -
| Sf. Gutt
Mohamed tryggði sigur! -
| Sf. Gutt
Adam ekki búinn á því! -
| Sf. Gutt
Vopnahlésdagurinn -
| Sf. Gutt
Mikil jákvæðni hjá félaginu