| Sf. Gutt

Fulltrúar Liverpool í Brasilíu

Kynningin á fulltrúum Liverpool í úrslitakeppni Heimsmeistarakeppninnar heldur áfram. Sá áttundi í röðinni er Jordan Henderson.

Nafn: Jordan Henderson.

Fæðingardagur:
17. júní 1990.

Fæðingarstaður: Sunderland á Englandi. 

Staða: Miðvallarleikmaður.


Félög á ferli:
Sunderland, Coventry City (lánsmaður) og Liverpool.

Fyrsti landsleikur: 17. nóvember 2010 gegn Frakklandi.

Landsleikjafjöldi: 11.

Landsliðsmörk: 0.

Leikir með Liverpool: 132.

Mörk fyrir Liverpool: 13.

Hvernig gekk á síðustu leiktíð? Jordan var einn allra besti leikmaður Liverpool á síðustu leiktíð og tók stórstígum framförum. Hann vann sér fast sæti á miðjunni og varð algjör lykilmaður í liðinu. Fjarvera hans, vegna leikbanns, í þremur af fjórum síðustu leikjunum var að magra áliti dýrkeypt.

Hver eru helstu einkenni okkar manns? Hann er þindarlaus og stoppar aldrei. Hann spilar boltanum vel og er úti um allt á miðjunni.   

Hver er staða Jordan í landsliðinu? Jordan hefur unnið sig í álit hjá mörgum síðasta árið og einn af þeim sem hefur álit á honum er Roy Hodgson landsliðsþjálfari. Roy valdi Jordan í liðshópinn fyrir úrslitakeppni Evrópumót landsliða fyrir tveimur árum og hefur yfirleitt valið hann síðan. Það er þó óvíst að hann verði byrjunarliðsmaður í Brasilíu.

Hvað um England? Líklega hafa aldrei verið gerðar minni kröfur til enska landsliðsins fyrir stórmót. Það er ekki búist við miklu af liðinu hans Roy Hodgson en kannski verður það bara sterkara en margur hyggur þegar á hólminn er komið. 

Alþjóðlegir titlar Englendinga: Heimsmeistarar 1966.

Besti Englendingur allra tíma? Það er úr mörgum snjöllum leikmönnum að velja. Margir telja þó miðvörðinn frábæra Bobby Moore, sem lék með West Ham United og Fulham, þann allra besta. Hann var fyrirliði Englendinga þegar þeir urðu heimsmeistarar 1966. Bobby var einn manna heiðraður með styttu við nýja Wembley leikvanginn þegar hann var reistur.

Vissir þú? Jordan hefur þrívegis verið kjörinn ungliði ársins á ferli sínum. Tvívegis hjá Sunderland og einu sinni hjá Liverpool. Að auki var hann valinn besti leikmaður undir 21. árs landsliðsins árið 2012. 

Helsta heimild: http://www.lfchistory.net.

 


TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan