| Sf. Gutt

Af kvennaliðinu

Keppnistímabili kvennaliðsins lauk fyrir sléttum mánuði. Hérna er allt það helsta um síðustu fjóra leiki liðsins á keppnistímabilinu. 

Liverpool vann góðan útisigur 1:2 í Brighton í fjórða síðasta leiknum. 

Næst kom Tottenham í heimsókn. Liðin skildu jöfn 2:2.

Síðasti heimaleikurinn fór fram á Anfield Road. Grannaslagur við Everton sem fór á versta veg. Everton vann 0:2. Góð mæting var á leikinn. Alls voru áhorfendur 15.376 talsins.

Allra síðasti leikur leiktíðarinnar var á útivelli við Chelsea sem sló Liverpool út úr FA bikarnum á síðustu mínútu. Aftur tapaði Liverpool á síðustu stundu. Eina mark leiksins var skorað í viðbótartíma.

Chelsea varð Englandsmeistari með yfirburðum. Liðið fékk 60 stig úr 22 leikjum og vann deildina sjötta árið í röð. Arsenal var næst með 48 stig. Skytturnar gerðu reyndar stórvel með því að vinna Meistaradeild kvenna. 

Chelsea vann Þrennu á leiktíðinni. Liðið vann Manchester United 3:0 í úrslitum í FA bikarnum. Áður hafði Chelsea unnið Manchester City 2:1 í úrslitum Deildarbikarsins.  

Framganga Liverpool á leiktíðinni var ekki að vonum. Liðið hlaut 25 stig og endaði í sjöunda sæti af 12 liðum. Aston Villa var líka með 25 stig en með betri markatölu. Liverpool fékk 41 stig á síðustu leiktíð og endaði í fjórða sæti. Árangurinn var því talsvert lakari en á síðustu sparktíð. Liðið komst þó í undanúrslit í FA bikarnum en tapaði á allra síðustu stundu fyrir Chelsea. Vonandi verður gengi liðsins betra á næsta keppnistímabili. Annað gengur ekki!  

Matt Beard missti starf sitt sem framkvæmdastjóri í febrúar. Amber Whiteley tók við stjórn liðsins og stýrði því út leiktíðina.

 

TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan