| Sf. Gutt
Luis Suarez mætti í gærkvöldi til leiks eftir leikbannið langa. Hann stóð fyrir sínu í Deildarbikartapinu fyrir Manchester United. Hann segist vera kominn aftur til að hjálpa liðinu. Luis hafði meðal annars þetta að segja í viðtali við Liverpoolfc.com.
,,Úrslitin voru ekki góð því við töpuðum en það góða var að við spiluðum mjög vel. Við sköpuðum okkur færi en misnotuðum þau."
,,Þetta hefur verið erfitt fyrir mig og liðið en það mikilvægasta er að ég er kominn til baka og ég ætla að hjálpa liðinu en það get ég ekki utan vallar. Ég mun alltaf leggja mig allan fram inni á vellinum. Ég er hérna til að hjálpa liðinu og ég mun reyna mitt besta til að hjálpa Liverpool."
Næsta víst er að það mun muna um Luis Suarez nú þegar hann er orðinn löglegur. Hvað sem hverjum finnst um hann þá er hann einn af bestu sóknarmönnum í heimi og slíkir menn skipta máli.
TIL BAKA
Kominn til að hjálpa liðinu
Luis Suarez mætti í gærkvöldi til leiks eftir leikbannið langa. Hann stóð fyrir sínu í Deildarbikartapinu fyrir Manchester United. Hann segist vera kominn aftur til að hjálpa liðinu. Luis hafði meðal annars þetta að segja í viðtali við Liverpoolfc.com.,,Úrslitin voru ekki góð því við töpuðum en það góða var að við spiluðum mjög vel. Við sköpuðum okkur færi en misnotuðum þau."
,,Þetta hefur verið erfitt fyrir mig og liðið en það mikilvægasta er að ég er kominn til baka og ég ætla að hjálpa liðinu en það get ég ekki utan vallar. Ég mun alltaf leggja mig allan fram inni á vellinum. Ég er hérna til að hjálpa liðinu og ég mun reyna mitt besta til að hjálpa Liverpool."
Næsta víst er að það mun muna um Luis Suarez nú þegar hann er orðinn löglegur. Hvað sem hverjum finnst um hann þá er hann einn af bestu sóknarmönnum í heimi og slíkir menn skipta máli.
Nýlegar fréttir
-
| Sf. Gutt
Merkur áfangi hjá fyrirliðanum! -
| Sf. Gutt
Draumar geta orðið að veruleika! -
| Sf. Gutt
Þrír lykilmenn fjarri góðu gamni! -
| Sf. Gutt
Af kvennaliðinu -
| Sf. Gutt
Hann kenndi mér mjög margt! -
| Sf. Gutt
Virgil van Dijk með 100 landsleiki! -
| Sf. Gutt
Andrew Robertson með 100 landsleiki! -
| Sf. Gutt
Leikjatilfærslur -
| Sf. Gutt
Tveir komnir fyrr heim! -
| Sf. Gutt
Í minningu Bill Shankly
Fréttageymslan

