| Sf. Gutt
Hafi það farið framhjá einhverjum þá verður grannaslagur í Liverpool um helgina og Rafael Benítez ætlar að fylgjast með. Hann vonast, að sjálfsögðu, eftir sigri sinna manna og segist ætla að fylgjast með leiknum.
,,Þetta ætti að verða frábær leikur og ég vona að Liverpool muni vinna sigur en við verðum að bíða og sjá. Grannaslagur er alltaf grannaslagur. Það skiptir engu hvort maður hafi eytt peningum í leikmenn eða ekki. Eldmóðurinn er alltaf til staðar og þetta ætti að vera stórgóður leikur."
Rafael Benítez, sem enn býr í Liverpool, fylgist sem fyrr vel með gamla liðinu sínu og segir að það hafi byrjað leiktíðina vel.
,,Mér finnst liðið standa sig mjög vel. Það hefur náð nokkrum góðum úrslitum. Önnur hafa ekki verið jafn góð en þegar á heildina er litið þá hefur liðið byrjað vel. Grannarimmur eru frábærar og þessi leikur verður mælikvarði, fyrir stuðningsmennina, á hvort liðið er í framför. Mér fannst gaman að taka þátt í grannarimmum á sínum tíma og ég mun örugglega hafa gaman af að horfa á leikinn heima hjá mér um helgina."
TIL BAKA
Rafa vonast eftir sigri
Hafi það farið framhjá einhverjum þá verður grannaslagur í Liverpool um helgina og Rafael Benítez ætlar að fylgjast með. Hann vonast, að sjálfsögðu, eftir sigri sinna manna og segist ætla að fylgjast með leiknum. ,,Þetta ætti að verða frábær leikur og ég vona að Liverpool muni vinna sigur en við verðum að bíða og sjá. Grannaslagur er alltaf grannaslagur. Það skiptir engu hvort maður hafi eytt peningum í leikmenn eða ekki. Eldmóðurinn er alltaf til staðar og þetta ætti að vera stórgóður leikur."
Rafael Benítez, sem enn býr í Liverpool, fylgist sem fyrr vel með gamla liðinu sínu og segir að það hafi byrjað leiktíðina vel.
,,Mér finnst liðið standa sig mjög vel. Það hefur náð nokkrum góðum úrslitum. Önnur hafa ekki verið jafn góð en þegar á heildina er litið þá hefur liðið byrjað vel. Grannarimmur eru frábærar og þessi leikur verður mælikvarði, fyrir stuðningsmennina, á hvort liðið er í framför. Mér fannst gaman að taka þátt í grannarimmum á sínum tíma og ég mun örugglega hafa gaman af að horfa á leikinn heima hjá mér um helgina."
Nýlegar fréttir
-
| Sf. Gutt
Líkt og ólíkt! -
| Sf. Gutt
Andrew Robertson hylltur! -
| Sf. Gutt
Joe Gomez orðinn góður! -
| Sf. Gutt
Alvaro Arbeloa á Anfield! -
| Sf. Gutt
Af spjöldum sögunnar! -
| Sf. Gutt
Tilkynnt um nýjan aðalstyrktaraðila! -
| Sf. Gutt
Reyni að gera mitt allra besta alla daga! -
| Sf. Gutt
Liverpool kaupir ungan franskan framherja! -
| Sf. Gutt
Richard Hughes lætur af störfum -
| Sf. Gutt
Alisson kominn upp í fjórða sæti!
Fréttageymslan

