| Sf. Gutt
Það er jafnan mikið undir þegar Liverpool og Manchester United leiða saman hesta sína. Um síðustu helgi mátti Liverpool þola tap 2:1 á Old Trafford.
Eftir leikinn, eins og svo oft áður, voru nokkur umdeild atvik til umfjöllunnar. Líklega var mest rætt um vítaspyrnuna sem Manchester United fékk og náði að jafna 1:1 upp úr. Antonio Valencia féll þá eftir viðskipti sín við Javier Mascherano. Rafael Benítez fannst vítaspyrnan vafasöm í meira lagi og hann taldi að Antonio hefði látið sig detta.
,,Hann datt á undarlegan hátt. Þegar maður sér atvikið í endurtekningu finnst manni grunsamlegt hvernig hann féll í völlinn."
Í herbúðum Manchester United töldu menn á hinn bóginn dómarann hafa dæmt rétt nema hvað Alex Ferguson heimtaði að Javier væri rekinn af leikvelli. Hvað svo sem rétt var þá dæmdi dómarinn vítaspyrnu og bókaði Javier.
Þegar Liverpool og Manchester United gengu á hólm á Anfield Road fyrr á leiktíðinni var líka hart barist og eftir leik voru umdeild atvik til umræðu. Hver man ekki eftir viðskiptum þeirra Jamie Carragher og Michael Owen úr þeim leik? Ekki voru allir ánægðir þá frekar en eftir leikinn um síðustu helgi. Svona er knattspyrnan!
TIL BAKA
Af umdeildum atvikum
Það er jafnan mikið undir þegar Liverpool og Manchester United leiða saman hesta sína. Um síðustu helgi mátti Liverpool þola tap 2:1 á Old Trafford. Eftir leikinn, eins og svo oft áður, voru nokkur umdeild atvik til umfjöllunnar. Líklega var mest rætt um vítaspyrnuna sem Manchester United fékk og náði að jafna 1:1 upp úr. Antonio Valencia féll þá eftir viðskipti sín við Javier Mascherano. Rafael Benítez fannst vítaspyrnan vafasöm í meira lagi og hann taldi að Antonio hefði látið sig detta.
,,Hann datt á undarlegan hátt. Þegar maður sér atvikið í endurtekningu finnst manni grunsamlegt hvernig hann féll í völlinn."
Í herbúðum Manchester United töldu menn á hinn bóginn dómarann hafa dæmt rétt nema hvað Alex Ferguson heimtaði að Javier væri rekinn af leikvelli. Hvað svo sem rétt var þá dæmdi dómarinn vítaspyrnu og bókaði Javier.
Þegar Liverpool og Manchester United gengu á hólm á Anfield Road fyrr á leiktíðinni var líka hart barist og eftir leik voru umdeild atvik til umræðu. Hver man ekki eftir viðskiptum þeirra Jamie Carragher og Michael Owen úr þeim leik? Ekki voru allir ánægðir þá frekar en eftir leikinn um síðustu helgi. Svona er knattspyrnan!
Nýlegar fréttir
-
| Sf. Gutt
Gleðileg jól! -
| Heimir Eyvindarson
Stjórnaðu spurningakeppni um Liverpool -
| Sf. Gutt
Alexander Isak frá næstu mánuði -
| Sf. Gutt
Jeremie Frimpong búinn að ná sér -
| Sf. Gutt
Virgil van Dijk í úrvalslið í fimmta sinn! -
| Sf. Gutt
Dómur upp kveðinn -
| Sf. Gutt
Úr leik! -
| Sf. Gutt
Mohamed fer til Marokkó -
| Sf. Gutt
Engin vandamál! -
| Sf. Gutt
Cody Gakpo meiddur
Fréttageymslan

