Skrtel með slitið aftari krossband
Martin Skrtel verður líklega lengi frá vegna meiðslanna sem hann hlaut gegn Manchester City á sunnudaginn. Hann sleit aftara krossband í hné og var borinn útaf sárþjáður.
Skrtel þurfti að fá súrefni út á vellinum og óttuðust menn það versta þegar Skrtel, sem er mikið hörkutól, stóð ekki upp aftur eftir að hafa dottið.
Hann mun hitta sérfræðing á morgun og eftir það kemur í ljós hversu lengi hann verður frá vegna meiðslanna.
Ian Cotton, talsmaður félagins sagði: ,,Hnéð á Martin var skannað í morgun sem sýndi að aftara krossband í hægra hné skaddaðist. Hann hittir sérfræðing á morgun þar sem kemur í ljós hversu alvarleg meiðslin eru og þá munum við vita nákvæmlega hversu lengi hann verður frá keppni."
Hér er smá fróðleikur um krossböndin í hnénu.
Meiðsli á aftara krossbandi eru ekki eins algeng og meiðsli á fremra krossbandi. Bæði meiðslin eru hinsvegar alveg jafn alvarleg. Bæði fremri og aftari krossböndin halda hnénu stöðugu og gefa því jafnvægi. Ef annaðhvort þessara krossbanda slitnar getur maður fundið fyrir sársauka, bólgu og minni hreyfigetu.
Ef aftara krossband slitnar eru áhrifin aðeins minni en þegar fremra krossband slitnar og líklegt er talið að viðkomandi sé frá keppni í einhverjar vikur eða lengur. Meðferðin miðast við það hversu alvarleg meiðslin eru og hversu lengi maður hefur verið með þau.
Hér fyrir neðan er mynd af hné og má sjá að aftara krossbandið er efst í listanum (A).
-
| Sf. Gutt
Milos Kerkez kominn til Liverpool -
| Sf. Gutt
Nathaniel Phillips heldur á braut -
| Sf. Gutt
Skjaldarleikurinn liggur fyrir! -
| Sf. Gutt
Florian Wirtz keyptur fyrir metfé! -
| Sf. Gutt
Vitezslav Jaros lánaður -
| Sf. Gutt
Leikjadagskráin birt -
| Sf. Gutt
Ungliðar á braut -
| Sf. Gutt
Það fengust peningar fyrir Trent -
| Sf. Gutt
Af leikmannamálum -
| Sf. Gutt
Liverpool kaupir ungan markmann