| Sf. Gutt

Dýrmæt afmælisgjöf!

Robbie Fowler færði sér og Liverpool dýrmæta afmælisgjöf í dag með því að skora sigurmarkið gegn Bolton á Anfield Road. Robbie varð 31. árs í dag en það voru sannarlega engin ellimerki á honum. Afmælismarkið reyndist eina mark leiksins og það gæti reynst gríðarlega mikilvægt þegar leiktíðinni lýkur á vordögum. Bæði gæti það tryggt Liverpool eitt af fjórum efstu sætum deildarinnar og svo gæti það hafa farið langleiðina með að tryggja Robbie nýjan samning. Sigur Evrópumeistaranna var naumur en fyllilega sanngjarn. Þetta var fimmti deildarsigur þeirra í röð!

Steven Gerrard kom inn í liðið eftir leikbann og var það eina breytingin sem Rafael Benítez gerði eftir sigurinn á West Bromwich Albion um síðustu helgi. Mohamed Sissoko vék úr byrjunarliðinu fyrir fyrirliðanum. Gestirnir byrjuðu betur í leiknum. Kevin Nolan, hinn harði stuðningsmaður Liverpool, komst í færi inn á teignum snemma leiks en náði ekki að vippa yfir Jose Reina. Eftir um átta mínútna leik fékk Bolton dauðafæri. Grikkinn Stelios Giannakopoulos slapp í gegnum vörn Liverpool. Hann lék inn á vítateiginn og skaut að marki en Jose Reina varði heldur laust skot hans vel. Liverpool gekk illa að koma sér í gang fram eftir öllum fyrri hálfleik. John Arne Riise átti bestu marktilraunina en hann skaut föstu skoti framhjá. Harry Kewell skaut svo hátt yfir rétt á eftir úr nokkuð góðu færi. Peter Crouch náði góðum skalla, undir lok hálfleiksins, eftir horn en boltinn fór beint á Jussi Jaaskelainen í markinu. Tíðindalitlum fyrri hálfleik virtist ætla að lykta án marka þegar komið var fram í viðbótartíma. Þá kom sending upp að vítateig Bolton. Robbie Fowler vann skallaeigvígi og skallaði til Peter Crouch. Peter lagði boltann aftur úr á Robbie sem skaut viðstöðulausu skoti utarlega úr teignum sem hafnaði neðst í hægra markhorninu. Mikill fögnuður braust út hjá stuðningsmönnum Liverpool en enginn fagnaði meira en afmælisbarnið sjálft sem stökk fast að því hæð sína í loft upp í fullum herklæðum. Leikmenn Bolton höfðu rétt tíma til að taka miðju áður en dómarinn flautaði til leikshlés. Sannarlega frábær endir á hálfleiknum!

Luis Garcia kom inn fyrir Djibril Cissé í leikhléinu og hann færði aukið líf í sóknarleik Liverpool eftir leikhlé. Hann skaut í hliðarnetið í byrjun hálfleiksins. Það munaði svo aðeins harsbreidd að Xabi Alonso næði að auka forystuna á 52. mínútu þegar bylmingsskot hans hafnaði í stöng. Kevin Davis fékk eina færi gestanna í síðari hálfleik rétt á eftir. Hann komst upp að teignum en Jose Reina kom vel út úr markinu og náði að verja þegar Kevin hugðist vippa yfir hann. Liverpool hafði nú miklu betri tök á leiknum en fyrir leikhlé en það gekk ekki að bæta við marki. Peter Crouch fékk mjög gott færi þegar tuttugu mínútur voru til leiksloka en hann skallaði beint á Finnan í marki Bolton eftir góða fyrirgjöf frá Harry Kewell. Harry tók svo góða rispu frá sínum vallarhelmingi þegar um tíu mínútur voru eftir af leiknum en hann skaut rétt framhjá. Gestirnir gáfust aldrei upp en sigur Liverpool var samt aldrei í hættu. Afmælisbarnið réði úrslitum og var það vel!

Liverpool: Reina, Finnan, Hyypia, Carragher, Riise, Cisse (Garcia 45. mín.), Alonso, Gerrard, Kewell (Traore 88. mín.), Fowler (Hamann 75. mín.) og Crouch. Ónotaðir varamenn: Dudek og Sissoko.

Mark Liverpool: Robbie Fowler (45. mín.)

Gult spjald: Sami Hyypia.

Bolton: Jaaskelainen, Hunt, N´Gotty, Ben Haim, Gardner, Nolan, Speed, Faye (Campo 74. mín.), Giannakopoulos (Pedersen 53. mín.), Davies og Okocha (Jansen 61. mín.). Ónotaðir varamenn: Walker og Borgetti.

Gult spjald: Abdoulaye Faye.

Áhorfendur á Anfield Road: 44.194.

Rafael benítez var ánægður með sigurinn og afmælisbarnið. ,,Það er ekkert betra fyrir sóknarmenn en að skora mark og hvað þá sigurmark. Það var skemmtilegt að Robbie skyldi skora á afmælisdaginn sinn. Ég finnst gott að sjá Robbie skora mörk og það er gott fyrir mig að sjá hann leggja svona hart að sér og leik virkilega vel. Við vissum að þetta er harður leikur og það yrði hart tekist á. Við áttum í vandræðum með að verjast aukaspyrnum, innköstum og löngum sendingum í fyrri hálfleik en við vorum miklu betri í þeim síðari. Við erum nú með 70 stig og kannski dugar okkur einn sigur til að tryggja okkur þriðja sætið örugglega."

TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan