| Sf. Gutt

Í hnotskurn

Jóla- og áramótatörninni lauk með jafntefli gegn Bolton á útivelli. Leikmenn Liverpool gáfust ekki upp og jöfnuðu tvívegis í leiknum. Þetta er leikur Liverpool og Bolton Wanderes í hnotskurn.

- Fyrsti leikur Liverpool á árinu 2006.

- Steven Gerrard skoraði fyrsta mark Liverpool á árinu 2006.

- Luis Garcia jafnaði leikinn með glæsilegu marki. Hann náði þarna að fagna marki á Reebok leikvanginum eftir að réttmætt mark var dæmt þar af honum á síðustu leiktíð.

- Þetta var tuttugasta mark Luis Garcia fyrir Liverpool.

- Hingað til hefur það verið góðs viti þegar Luis hefur skorað fyrir Liverpool því liðið hefur aldrei tapað í leik þegar Spánverjinn hefur skorað.

- El Hadji Diouf lék sinn fyrsta leik gegn Liverpool eftir að hann yfirgaf Liverpool.

- Hann var lánsmaður hjá Bolton á síðustu leiktíð en þá mátti hann ekki leika gegn Liverpool. 

- Það var merkilegt að Senegalinn skyldi skora fyrir Bolton gegn Liverpool því síðasta mark hans fyrir Liverpool kom í leik gegn Bolton.

- El Hadji lék 80 leiki með Liverpool og skoraði sex mörk í þeim.

- Kevin Nolan ætti nú ekki að hafa mikið á móti takkaförunum sem komu eftir að Steven Gerrard rakst á hann. Kevin er nefnilega mikill stuðningsmaður Liverpool og ef ég veit rétt þá fór hann til Istanbúl til að hvetja Liverpool! Hvaða stuðningsmaður Liverpool vildi ekki hafa takkaför fyriliða Evrópumeistaranna á sér? Nei kannski ekki!

- Kevin er frá Liverpool og æfði með yngri liðum Liverpool.

- Florent Sinama Pongolle var í fyrsta sinn í byrjunarliði Liverpool frá því í leiknum við Birmingham í september.

- Dietmar Hamann var í fyrsta sinn í byrjunarliðinu frá því hann meiddist í Meistarardeildarleiknum gegn Chelsea í byrjun desember.

- Steven Gerrard var valinn í lið vikunnar á vefsíðu BBC.

- Liverpool fékk tvö mörk á sig í fyrsta sinn frá því í lok október þegar liðið tapaði 2:1 fyrir Crystal Palace í Deildarbikarnum.

- Liverpool hefur ekki gengið ýkja vel á Reebok leikvanginum. Liðið hefur aðeins einu sinni unnið sigur þar. Það var leiktíðina 2002/2003. Liverpool vann þá 3:2.

- Það er jafn mikill kraftur í Sammy Lee á varamannabekknum hjá Bolton og þegar hann var þjálfari hjá Liverpool. Sammy fylgdist grant með leiknum og lifði sig vel inn í hann eins og hann er vanur. Hann er hægri hönd Sam Allardyce framkvæmdastjóra Bolton.

- Fyrir þennan leik hafði Liverpool unið tíu deildarleiki í röð. Ef sigur hefði unnist gegn Bolton hefði félagsmet verið jafnað. Það met var sett á leiktíðinni 1981/82.

Bolton Wanderes: Jaaskelainen, O´Brien, Jaidi, N´Gotty, Gardner, Faye, Nolan, Giannakopoulos, Speed (Fadiga 90. mín.), Diouf (Ben Haim 83. mín.) og Davies. Ónotaðir varamenn: Walker, Borgetti og Vaz Te.

Mörk Bolton:  Radhi Jaidi (10. mín.) og El Hadji Diouf (71. mín.). 

Gul spjöld: Abdoulaye Faye og Kevin Nolan

Liverpool: Reina, Finnan, Carragher, Hyypia, Traore, Gerrard, Hamann (Alonso 64. mín.), Sissoko (Cissé 83. mín.), Kewell, Pongolle (Garcia 62. mín.) og Crouch. Ónotaðir varamenn: Carson og Riise.

Mörk Liverpool: Steven Gerrard, víti (67. mín.) og Luis Garcia (82. mín.).

Gul spjöld: Peter Crouch, Jamie Carragher og Mohamed Sissoko.

Áhorfendur á Reebok leikvanginum: 27.604.

Maður leiksins: Steven Gerrard. Fyrirliðinn fór fyrir sínum mönnum þegar illa stefndi. Hann fór þá víða um völl í leit að veikleikum í vörn Bolton. Árangurinn af því var vítaspyrnan sem hann fékk og skoraði svo sjálfur úr. Steven var mjög duglegur og stóð fyrir sínu þótt hann hafi oft leikið betur.

Jákvætt :-) Liverpool náði að jafna tvívegis eftir að hafa lent marki undir. Leikmenn liðsins börðust vel þó svo að liðið léku ekki eins vel og það getur. Steven var góður og sýndi öryggi af vítapunktinum. Luis sýndi vel knattækni sína þegar hann jafnaði metinn.

Neikvætt :-(  Sigurgangan var stöðvuð. Leikmenn Liverpool gerðu of mörg mistök í varnarleiknum og Jose Reina var ekki öruggur. Leikmenn Liverpool létu heimamenn æsa sig upp og misstu kannski tökin á eign leik fyrir bragðið. Eftir á að hyggja var kannski ekki rétt að breyta uppstillingunni á miðjunni. Miðjuspilið lagaðist að minnsta kosti mikið þegar Xabi Alonso kom inn á. Þó svo hann og aðrir hafi verið þreyttir þá hefði kannski verið rétt að láta hann byrja þennan leik. Það sama gilti um stöðu vinstri bakvarðar.

Umsögn Liverpool.is um leikinn: Evrópumeistararnir voru daufir í byrjun leiks en heimamenn voru þeim mun grimmari og þeir komust yfir á 10. mínútu. Markið kom eftir mikil mistök hjá hinum trausta Jose Reina sem er búinn að vera svo öruggur síðustu vikurnar. Hann náði ekki að grípa auðvelda fyrirgjöf eftir aukaspyrnu. Spánverjinn reyndi að ná boltanum aftur en misskilningur milli hans og Sami Hyypia gaf Túnisbúanum Radhi Jaidi færi á að skalla í markið. Þessi mistök í vörninni komu mjög á óvart eftir hið mikla öryggi sem hún hefur sýnt síðustu tvo mánuðina. Leikmenn Liverpool hresstust eftir að hafa lent undir og Jussi Jaaskelainen varði vel fast langskot frá Dietmar Hamann. Heimamenn voru svo nærri búnir að auka forystuna þegar Radhi Jaidi komst í gott færi en Steve Finnan komst fyrir skot hans á síðustu stundu. Enn bjargaði Jussi heimamönnum þegar hann sló bylmingsskot Djimi Traore yfir á snilldarlegan hátt. Heimamenn voru því enn yfir þegar hálfleiknum lauk. Mikill hiti var í mönnum á köflum og nokkur umdeild atvik áttu sér stað. Til dæmis vildu heimamenn fá vítaspyrnu eftir brot Jamie Carragher. Eitthvað var líklega til í þeirri kröfu. Liverpool átti síðari hálfleikinn eins og hann lagði sig. Það var þó ekki fyrr en á 67. mínútu að liðið náði að jafna. Steven Gerrard ruddist þá inn í vítateig heimamanna. Þar klippti Joey O´Brien hann niður. Að sjálfsögðu var dæmd vítaspyrna. Steven tók spyrnuna sjálfur og skoraði af miklu öryggi. Fyrsta mark Liverpool á árinu 2006 leit þar með dagsins ljós. Allt virtist nú stefna í að Liverpool ætti að geta herjað fram sigur á lokakafla leiksins. En Bolton komst aftur yfir upp úr þurru á 71. mínútu. Kevin Davies slapp þá upp vinsti kantinn og gaf fyrir. Þar kom Senegalinn El Hadji Diouf og náði, af öllum mönnum, einhvern vegin að koma boltanum í markið af markteig. Varnarmenn Liverpool og Jose voru ekki vel á verði frekar en í fyrra markinu. Leikmenn Liverpool voru óánægðir með markið því þeir töldu Kevin hafa verið rangstæðan þegar hann slapp í gegn. Virtust þeir hafa rétt fyrir sér í þeirri kröfu. En El Hadji fagnaði markinu, gegn sínu gamla félagi, af miklum móð. Hann átti stuttu eftir markið skot í hliðarnetið úr góðu færi. En leikmenn Liverpool létu ekki slá sig út af laginu og héldu áfram að sækja. Á 82. mínútu bar sóknin árangur. Xabi Alonso sendi inn á teiginn á landa sinn Luis Garcia. Hann tók boltann frábærlega niður með brjóstkassanum og hamraði hann svo viðstöðulaust í markið. Glæsilegt mark hjá Luis. Leikmenn Liverpool reyndu að ná öllum stigunum en það tókst ekki. Þeir voru nærri því búnir að ná sigurmarkinu þegar Djibril Cissé skallaði hárfínt framhjá undir lok leiksins.  Jafntefli var kannski nokkuð sanngjarnt í þessum mikla baráttuleik. 

 

TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan