| Sf. Gutt

Sjöundi deildarsigurinn í röð hjá Evrópumeisturunum

Evrópumeistararnir unnu sinn sjöunda deildarsigur í röð nú upp úr hádeginu þegar Middlesborough lá 2:0 í valnum. Liverpool er eftir sigurinn í öðru sæti deildarinnar. LIverpool lék Sigurinn var gott nesti fyrir Japansferðina. Félagsmet var jafnað þegar tíundi leikurinn þar sem Liverpool fær ekki á sig mark bættist við. En Jose Reina setti sjálfur félagsmet með því að halda hreinu markinu hreinu í tíu leikjum.

Liverpool byrjaði leikinn vel og Steven Gerrard ógnaði marki gestanna tvívegis á á fyrstu fimm mínútunum. Leikmenn Liverpool voru mjög kraftmiklir en Middlesbrough varðist vel og leikmenn liðsins voru mjög duglegir. Sem dæmi um kraftmikinn leik Liverpool var að Steven Gerrard skildi takkaför eftir á einu auglýsingaskilti. Hann rann á fullum krafti á skiltið þegar hann var að reyna að ná boltanum uppi við endamörk! Besta færi Liverpool í fyrri hálfleik kom undir lok hans. Það fékk Mohmed Sissoko. En hann skallaði beint á Mark Schwarzer markvörð Middlesbrough úr dauðafæri.  

Gestirnir voru næstum búnir að ná forystu strax í upphafi síðari hálfleiks. Mark Viduka fékk þá boltann í upplögðu færi en Jose Reina varði frábærlega með fæti. Eftir þetta herti Liverpool tökin. John Arne Riise skaut þrumuskoti yfir og ekki löngu síðar varði Mark mjög vel skot frá Fernando Morientes. Mark varði svo naumlega frá landa sínum Harry Kewell sem reyndi að vippa yfir hann. Látlaus sókn Liverpool fór í hönd en leikmenn Middlesbrough vörðust með kjafti og klóm og Mark Schwarzer, sem lék mjög vel í markinu, var öruggur fyrir aftan vörnina. Rafael Benítez skipti Peter Crouch af leikvelli á 67. mínútu. Luis Garcia kom í hans stað og fimm mínútum síðar var Spánverjinn búinn að leggja upp mark fyrir Fernando Morientes. Luis sendi þá boltann inn á teiginn. Fernando fékk boltann í dauðafæri og skoraði af öryggi neðst í markhornið. Leikmenn Liverpool og áhorfendur fögnuðu markinu innilega enda var alla farið að lengja eftir markinu sem myndi brjóta ísinn. Það sem meira var Liverpool skoraði þetta mark manni færri því Sami Hyypia var utan vallar þar sem gert var að höfuðmeiðslum sem hann varð fyrir eftir árekstur við einn leikmanna Middlesbrough. Sami kom fljótlega inn á og það fyrsta sem hann gerði var að skalla boltann frá marki Liverpool! Áhorfendur fögnuðu Finnanum mjög fyrir þetta og sungu nafn hans! James Morrison fékk gott færi á að jafna en Jose varði vel. Fimm mínútum eftir að Fernando skoraði fyrsta mark leiksins skoraði hann aftur. Jamie Carragher sendi langa sendingu fram. Einn leikmanna Boro náði aðeins að stýra boltanum að eigin marki beint á Fernando. Spánverjinn fékk boltann einn fyrir innan vörnina og lyfti honum snyrtilega yfir Mark Schwarzer. Með þessu marki var leikurinn unninn og eina spurningin var sú hvort Liverpool næði að halda hreinu. Ekki minnkuðu líkurnar á því þegar Chris Rigott var rekinn af leikvelli þegar sex mínútur voru eftir. Jose Reina hélt hreinu og sjöundi deildarsigur Liverpool í röð var í höfn. Liverpool er nú í öðru sæti deildarinnar og sigurinn var sannarlega gott nesti fyrir ferðina til Japans þar sem Evrópumeistararnir munu reyna að verða heimsmeistarar.

Þetta var einn besti leikur leiktíðarinnar hjá Liverpool. Liðið lék kraftmikinn sóknarleik og það endaði með því að hann bar árangur. Að auki jafnaði jöfnuðu núverandi leikmenn Liverpool félagsmet með því að leika tíunda leikinn í röð án þess að fá á sig mark. Frábær árangur! 

Liverpool: Reina, Finnan, Hyypia, Carragher, Riise, Gerrard, Alonso, Sissoko, Kewell (Cisse 82. mín.), Morientes (Josemi 87. mín.) og Crouch (Garcia 67. mín.). Ónotaðir varamenn: Dudek og Warnock.

Mörkin: Fernando Morientes (72. og 77. mín).

Gult spjald: Mohamed Sissoko.

Middlesbrough: Schwarzer, Bates, Southgate, Riggott, Queudrue, Morrison (Hasselbaink 75. mín.), Doriva, Boateng, Rochemback, Viduka og Yakubu (Ehiogu 86. mín.). Ónotaðir varamenn:  Jones, Pogatetz og Johnson.

Rautt spjald: Chris Riggott (84. mín.).

Gul spjöld: Matthew Bates og Chris Riggott.

Áhorfendur á Anfield Road: 43.510.

Rafel Benítez var ánægður með sína menn eftir sjöunda deildarsigurinn í röð. "Þetta var erfiður leikur en við verðskulduðum sigurinn og hann var fyrir öllu. Við fengum færi í fyrri hálfleik sem okkur tókst ekki að nýta en ég sagði leikmönnunum í hálfleik að ef við héldum áfram að sækja og spila vel þá myndum við finna leið í netið. Við erum að spila vel sem lið og erum að leggja hart að okkur. Við erum búnir að halda hreinu í tíu leikjum í röð og Pepe Reina varði tvisvar sinnum mjög vel í dag. Við höfum góðan markmann, erum að verjast vel og sækja vel sem lið. Það er gott fyrir knattspyrnustjóra að sjá liðið sitt spila vel, skora og halda hreinu, en nú einbeitum við okkur bara að því að fara til Japan og bæta enn einum bikarnum í safnið."


TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan