Vil láta meira til sín taka!

Dominic Szoboszlai segist vilja láta meira til sín taka hjá Liverpool á komandi keppnistímabili. Hann segir að unga kynslóð félagsins þurfi nýjar fyrirmyndir því goðsagnirnar Mohamed Salah og Andrew Robertson hafi yfirgefið félagið.
,,Tvær goðsagnir hafa yfirgefið félagið en félagið en ennþá eins og það hefur alltaf verið. Félagið er ennþá eitt það stærsta í öllum heiminum. Menn fara og aðrir koma í þeirra stað. Við sem hér erum verða að stíga fram fyrir skjöldu og verða fyrirmynd fyrir ungu kynslóðina."
,,Ég reyni að vera fyrirmynd innan vallar sem utan. Margir aðrir leikmenn vilja það líka og það er mjög gott. Við þurfum að sýna kraft og ákveðni á þessu tímabili. Það vantaði upp á það en nú finnst mér bæði þjálfarar og leikmenn vera að sýna þetta í verki. Nú verðum við að ná þessu hugarfari inn í liðið sem er hérna núna."

Dominic Szoboszlai er búinn að vera fyrirliði ungverska landsliðsins síðustu árin og hann er því vanur að leiða lið og vera fyrirmynd. Hann gerði nýjan samning við Liverpool fyrr í sumar og það er gott til þess að vita að hann ætlar að láta meira til sína taka. Reyndar lét Ungverjinn sitt ekki eftir liggja á síðustu leiktíð en þá var hann besti maður liðsins!
-
| Sf. Gutt
Nýr varabúningur vígður! -
| Sf. Gutt
Fleiri æfingaleikir -
| Sf. Gutt
Jeremy ekki enn búinn að ná sér! -
| Sf. Gutt
Joe Gomez úr leik! -
| Sf. Gutt
Freddie Woodman fær nýjan samning! -
| Sf. Gutt
Peningar í kassann! -
| Sf. Gutt
Kostas kominn heim! -
| Sf. Gutt
Liðshópur Liverpool sem fór til Bandaríkjanna! -
| Sf. Gutt
Spánverjar heimsmeistarar! -
| Sf. Gutt
Dominik Szoboszlai verður um kyrrt!

