Victor Munoz keyptur!

Liverpool hefur fest kaup á spænska landsliðsmanninum Victor Munoz. Kaupin koma á óvart því hann hefur ekki verið í umræðu um hugsanlega leikmenn sem Liverpool hefði kannski áhuga á. Liverpool kaypti Victor frá spænska liðinu Osasuna fyrir 34,5 milljónir sterlingspunda.
Victor fæddist í Barcelona 13. júní 2003. Hann byrjaði að æfa með unglingaliði Sant Gabriel 2012 og fór svo til Barcelona 2014. Árið 2017 skipti hann yfir í unglingalið Damm. Real Madrid fékk hann svo til sín 2021 og þar var hann í eina leiktíð. Hann er því búinn að fá uppeldi bæði hjá Barcelona og Real Madrid.
Victor lék í fyrsta sinn opinberan leik með RSC Internacional á leiktíðinni 2022/23. Á næstu tveimur keppnistímabilum spilaði hann með Real Madrid Castilla sem er varalið Real Madrid.
Á sparktíðinni 2024/25 þótti hann tilbúinn í aðallið Real Madid. Hann lék fjórum sinnum með því. Fyrir síðustu sparktíð var hann seldur til Osasuna. Victor gekk vel með liðinu, spilaði 36 leiki og skoraði sjö mörk. Newcastle United sýndi honum mikinn áhuga í byrjun sumars og virtist stefna í að hann færi þangað en svo kom Liverpool inn í myndina og Victor valdi að fara þangað.
Spánverjinn er eldfljótur og þykir með efnilegri leikmönnum þjóðar sinnar. Hann getur bæði spilað á vinstri kant og fremmst á vellinum.
Þessi kaup eru þau fyrstu á valdatíð Andoni Iraola. Vonandi nær landi hans að standa undir nafni.
-
| Sf. Gutt
Nýi maðurinn strax meiddur! -
| Sf. Gutt
Leikjadagskráin birt -
| Sf. Gutt
Þrír þjálfarar fara! -
| Sf. Gutt
Landsliðsferill Wataru Endo á enda! -
| Grétar Magnússon
Origi leggur skóna á hilluna -
| Grétar Magnússon
Iraola tekur við stjórnartaumunum -
| Sf. Gutt
Liverpool Football Club á afmæli í dag! -
| Sf. Gutt
Munnlegt samkomulag frágengið! -
| Sf. Gutt
Af kvennaliðinu -
| Sf. Gutt
Ibrahima Konate heldur á braut!

