| Sf. Gutt

Arne Slot kominn með 100 leiki!

Arne Slot stjórnaði Liverpool í sínum 100. leik þegar Liverpool mætti Galatasaray í Tyrklandi á dögunum. Það eru sannarlega tímamót. Hann hafði þetta að segja, á blaðamannafundi fyrir leikinn, þegar hann hann var spurður út í tímamótin. 

,,Það var með miklu stolti sem ég tók við starfi sem framkvæmdastjóri Liverpool og það eru sannarlega tímamót að stjórna liðinu í 100 leikjum. Ég held að ég hafi bara náð nokkuð góðum árangri í þessum 100 leikjum þó svo að manni finnst það kannski ekki ef maður hlustar á allt sem sagt er!"

,,En ég er stoltur og það verður gaman að 100. leikurinn verði í 16 liða úrslitum í Meistaradeildinni á útivelli við Galatasaray. En framkvæmdastjórinn sjálfur skiptir aldrei mestu máli. Leikmennirnir eru alltaf mikilvægastir. Ég ætla að reyna að undirbúa leikmennina jafn vel og fyrir alla 99 leikina sem ég hef stjórnað hingað til. Eins og ætíð verða leikmennirnir að standa sig. Ég var mjög heppinn að fá stórgott lið í hendurnar á síðasta keppnistímabili og eins núna á þessu. Ég ber fullt traust til liðsins og trúi því að leikmennirnir muni standa sig jafn vel og við reiknum með að Liverpool lið standi sig."

Reyndar fór svo að 100. leikurinn tapaðist 1:0 fyrir Galatasaray. En sama er það er ekki annað hægt en að segja að árangur Arne hjá Liverpool sé stórgóður. Reyndar er árangurinn á þessari leiktíð alls ekki nógu góður en Englandsmeistaratitillinn verður ekki frá Arne tekinn! Við sjáum svo hvað framtíðin ber í skauti sér.

 

TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan