| Mummi

Árshátíð Liverpoolklúbbsins 2026!

Hin árlega árshátíð Liverpool klúbbsins á Íslandi verður haldin 21. mars næstkomandi og fer hátíðin fram í veislusalnum Sjónarhóli í Kaplakrika.

Miðaverð fyrir félagsmenn er 13.990,- kr en 15.990,- kr fyrir aðra gesti. 

Hinn eini sanni Einar Bárðason poolari mikill er öllum góðkunnur og hann ætlar að veislustýra kvöldinu eins og honum er einum lagið. 

Heiðursgestur okkar að þessu sinni er enginn annar en Emile Heskey, hann ætti að vera flestum kunnugur en hann spilaði vek á annað hundrað leiki með liðinu okkar í byrjun þessarar aldar, á árunum 2000-2004. Hann kom frá Leicester City sumarið 2000 fyrir um 11 milljónir punda, sem var þá hæsta upphæð sem Liverpool hafði greitt fyrir leikmann á þeim tíma. Hann var lykilmaður þegar Liverpool vann þrennuna 2000-2001. Ásamt honum verður að venju spyrillinn okkar hún Ragnhild Lund Ansnes en hún hefur fylgt gestunum okkar undanfarin þó nokkur ár.

Marc Kenny mun keyra upp stuðið með gítarinn sinn og Liverpool söngvana að vopni. Hreimur Örn okkar eini sanni mun svo halda uppi fjörinu á dansgólfinu eftir að skipulagðri dagskrá líkur.

Hvað matinn varðar þá verður lystauki í upphafi frá MiniGarðinum en aðalrétturinn frá Njótum veisluþjónustu þar sem í boði verður  hægeldað lambalæri og steikt kalkúnabringa með öllu tilheyrandi. Það verður enginn svikinn af þessum kræsingum. 

Húsið verður opnað kl. 17:30 og gefst gestum þá tími til að hitta kempuna okkar frá Liverpool og fá mynd með honum. Fordrykkur verður í boði styrktaraðila okkar CCEP. Þá verður einnig hægt að kaupa happadrættismiða þar sem ágóðinn af þeim rennur beint í styrktarsjóð klúbbsins, en veglegir vinningar verða í boði líkt og fyrri ár. Borðhald hefst kl 19:00.

Hægt er að setja inn sem athugasemd í kaupferlinu ef sérstakar óskir eru með borðaskipan, ekki er hægt að lofa því að hægt sé að verða við öllum óskum en við gerum okkar besta. Sjá nánar á markaðstorgi abler.io

 
TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan