James efstur á blaði!

James Milner er nú orðinn efstur á blaði yfir þá leikmenn sem hafa leikið flesta deildarleiki eftir að Úrvalsdeildin hóf göngu sína á Englandi. Hann komst efst á blaðið þegar hann lék með Brighton á útivelli gegn Brentford um síðustu helgi. Leikurinn var númer 654 á ferli James. Svo því sé haldið til haga þá vann Brighton góðan útisigur 0:2.
James tók metið af Gareth Barry. Hann lék 653 með Aston Villa, Manchester City, Everton og West Bromwich Albion.
Um leið og James Milner lék metleikinn komst hann í Heimsmetabók Guinness fyrir þrenn afrek. Í fyrsta lagi fyrir leikina 654. Í annan stað fyrir að vera búinn að spila á 24 leiktíðum í röð í Úrvalsdeildinni. Þriðja metið flest í því að það eru 22 ár og 248 dagar milli fyrsta marks hans og þess sem hann skoraði síðast í deildinni.
,,Þegar ég var yngri fékk ég Heimsmetabók Guinness í jólagjöf á hverjum jólum. Það er því býsna magnað að vera kminn sjálfur í bókina."
James varð Englandsmeistari, bikarmeistari, Deildarbikarmeistari, Evrópumeistari, Stórbikarmeistari, heimsmeistari félagsliða og Skjaldarhafi með Liverpool. Hann varð tvívegis Englandsmeistari með Manchester City og vann auk þess FA bikarinn, Deildarbikarinn og Skjöldinn með liðinu.
Auk Liverpool og Manchester City eru leikir James í efstu deild líka með Leeds United, Newcastle United, Aston Villa og Brighton & Hove Albion. James lék sinn fyrsta deildarleik 10. nóvember 2002. Hann kom þá inn sem varamaður fyrir Leeds á móti West Ham United.
Til hamingju með áfangann James!
-
| Sf. Gutt
Er Alisson Becker á förum? -
| Sf. Gutt
Er ferill Mohamed hjá Liverpool búinn? -
| Sf. Gutt
Hugo búinn í aðgerð -
| Sf. Gutt
Gleðilegt sumar! -
| Sf. Gutt
Mestar líkur á að Arne Slot verði áfram! -
| Sf. Gutt
Illur grunur staðfestur -
| Sf. Gutt
Alexander Manninger látinn -
| Mummi
Aðalfundur Liverpoolklúbbsins -
| Sf. Gutt
Í minningu -
| Sf. Gutt
Anfield á eftir að hafa mikla þýðingu!


