Af lánsmönnum

Nokkrar tilfærslur hafa orðið hjá lánsmönnum hjá Liverpool það sem af er ársins. Nokkrir leikmenn eru komnir heim. Það gengur upp og niður.
James McConnell kom heim frá Ajax. Hann spilaði ekki mikið þar. Hann var meiddur á öxl og þurfti að fara í aðgerð.
James Balagizi var lánaður til Forest Green Rovers en er kominn til baka heim.
Owen Beck var lánaður til Derby County en lánsdvölinni er lokið vegna meiðsla. Hann tognaði illa aftan í læri og spilar ekki á næstunni. Owen var mjög góður hjá Blackburn Rovers á síðustu leiktíð.
Luke Chambers var lánaður til Charlton Athletic. Hann verður þar til vors. Charlton er í næst efstu deild.
Lewis Koumas var hjá Birmingham City en kom heim um áramót. Hann er nú kominn í lán til Hull City sem spilar í næst efstu deild eins og Birmingham. Hann skoraði eitt mark í 25 leikjum hjá Birmingham. Veilsverjinn skoraði í sínum fyrsta leik með Hull. Lewis er búinn að spila níu landsleiki fyrir Wales.
Calum Scanlon var lánaður til Cardiff City. Liðið er efst í þriðju efstu deild.
Markmaðurinn Harvey Davies er kominn heim frá Crawley.
-
| Mummi
Árshátíð Liverpoolklúbbsins 2026! -
| Sf. Gutt
Ryan Gravenberch gerir nýjan samning! -
| Sf. Gutt
Nýtt félagsmet! -
| Sf. Gutt
Wataru Endo fór í aðgerð -
| Sf. Gutt
Til hamingju! -
| Mummi
Liverpool páskaegg -
| Sf. Gutt
Leikjatilfærslur -
| Mummi
Kenny Dalglish! Sérstök viðhafnarsýning -
| Sf. Gutt
Florian Wirtz er ekki í lagi! -
| Sf. Gutt
Dregið í Meistaradeildinni


