| Sf. Gutt

Þetta er allt að koma!

Curtis Jones skoraði fyrsta mark Liverpool í bikarsigrinum á Brighton. Hann segir að þetta sé allt að koma hjá Liverpool og það komi að því að liðið fari að spila eins og meistarar á nýjan leik. 

,,Við höfum náð vel saman um nokkurt skeið. En það má öllum ljóst vera að keppnistímabilið hefur ekki verið eins gott og við hefðum viljað. En ég hef alltaf sagt að slíkt er hluti af íþróttunni. Maður getur ekki reiknað með því að vinna hvern einasta leik. Önnur lið hafa verið að bæta sig. Við höfum líka verið að bæta okkur. Það hafa orðið breytingar á liðshópnum. Nýir menn hafa komið og aðrir hafa farið. Það hefur skiljanlega tekið tíma að ná takti eftir allar þessar breytingar en mér finnst liðið hafa verið að ná saman. Það skiptir miklu að liðsandinn, utan vallar, er góður."

,,Það er bara spurning hvenær við komumst almennilega á skrið og förum að spila eins og meistarar á nýjan leik. Ég vil vinna það sem er í boði. Ég spila eins og stuðningsmaður og ég veit hvers stuðningsmenn okkar vænta. Ég er sjálfur stuðningsmaður og ég geri mér fulla grein fyrir því hvernig er að spila fyrir svona lið. Það er ætlast til að við vinnum titla. Meistaradeildina eða Úrvalsdeildina. Ef ekki tekst að vinna tvo stærstu titlana eru tveir aðrir í boði sem hægt er að vinna."

Vonandi næst að vinna einn eða fleiri titla á keppnistímabilinu. Allt getur gerst!

 

TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan