| Mummi

Miðasala á Liverpoolleiki

Liverpoolklúbburinn á Íslandi er með til sölu miða á tvo leiki á seinni hluta tímabilsins 25/26 eftir áramót:

 Liverpool – Burnley sem er áætlað að fari fram 17. janúar  kl. 15:00

 Liverpool – Fulham sem er áætlað að fari fram 11. apríl kl. 14:00 

Opnað hefur verið fyrir skráningu í pott. 

ATH. Sala fer eingöngu fram í gegnum Abler og í stað þess að fyrstur kemur fyrstur fær þá skrá allir sig á biðlista og þegar þeirri skráningu er lokið kl. 16:00, þann 18.11.2025 munum við taka öll nöfnin og draga úr þeim eins og lottói. Við vonum að þetta verði til þess að allir sitji við sama borð. 

Útdrátturinn verður í beinni útsendingu þriðjudaginn 18.11.2025 kl. 19:00 á Facebook síðu klúbbsins Liverpoolklúbburinn á Íslandi og á instagramsíðu klúbbsins #lfcice. Hægt verður að skrá sig á biðlista fyrir miðum til þriðjudagsins 18.11.2025 til kl. 16:00. Verð fyrir hvern miða er aðeins 15.000 krónur. Einungis skráðir félagar sem hafa greitt árgjaldið eiga möguleika að kaupa miða. Til að kaupa miða þarf að fara inná https://abler.io/shop/liverpoolklubburinn eða Abler appið og kaupa miðana þar í gegnum markaðstorgið. 

Í boði er að kaupa 2 miða á mann. ATH. Við vitum ekki hvar á vellinum miðarnir eru sem klúbburinn fær úthlutað fyrr en þeim er úthlutað 1-2 vikum fyrir leik. Við getum ekki ábyrgst að miðarnir séu hlið við hlið en við reynum eftir fremsta megni að raða því þannig niður en því miður fáum við ekki alltaf úthlutað öllum miðum saman. Í flestum tilfellum fær fólk miða saman. Allar nánari upplýsingar eru veittar í gegnum netfangið [email protected].

 
TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan