Það var fyrir tíu árum!

Í dag er áratugur liðinn frá því Jürgen Klopp tók við sem framkvæmdastjóri Liverpool. Ekki er hægt að efast um að ráðningin hafi verið ein sú besta í sögu félagsins!
Það var mikil spenna í loftinu í Liverpool og víðar fyrir tíu árum síðan. Jürgen Klopp var á leiðinni! Þetta var svo sem ekki ný frétt því dagana á undan höfðu traustustu fjölmiðlar í Bretaveldi og Germaníu fullyrt að Þjóðverjinn yrði arftaki Brendan Rodgers. Þennan dag myndi fást staðfesting á því og sú varð raunin!
Jürgen vaknaði í Þýskalandi en fjölmiðlamenn höfðu góðar gætur á honum og svo fór seinni partinn að fréttir bárust af því að Jürgen væri kominn í flug með einkaflugvél og stefnan hefði verið tekin til Liverpool. Fjölmagir stuðningsmenn Liverpool fylgdist með flugi vélarinnar á sérstakri vefsíðu! Vélin lenti heilu og höldnu á John Lennon flugvellinum í Liverpool og varla hefur verið fylgst jafn náðið með nokkurri flugvél sem hefur lent á þeim góða flugvelli fyrr og síðar.

Á flugvellinum tóku forráðamenn Liverpool á móti framkvæmdastjóraefninu og svo var ekið út í borgina. Seinna um kvöldið birtist frétt á Liverpoolfc.com þar sem greint var frá því að Jürgen Klopp væri búinn að skrifa undir samning sem framkvæmdastjóri Liverpool og um leið var boðaður blaðamannafundur morguninn eftir. Í kjölfarið var birt viðtal við Jürgen á síðunni sem hann endaði á þessum frægu orðum. ,,Við verðum að fara að trúa í stað þess að efast. Strax!"
Jürgen tókst það sem hann lagði upp með og stefndi að. Hann náði að fá stuðningsmenn Liverpool til að trúa á málstaðinn og hætta að efast. Það tók tíma en ætlun Þjóðverjans tókst fullkomlega. Átta titlar bera því fagurt vitni!

Þann 26. janúar í fyrra kom Jürgen knattspyrnuheiminum í opna skjöldu. Hann tilkynnti þá að hann myndi láta af störfum sem framkvæmdastjóri Liverpool í lok keppnistímabilsins. Ákvörðun hans stóð og hann var kvaddur með virktum á Anfield Road eftir að Liverpool hafði unnið Wolverhampton Wanderes 2:0. Ótrúlegur og ógleymanlegur kafli í sögu Liverpool Football Club var á enda runninn!
-
| Sf. Gutt
Í minningu -
| Sf. Gutt
Leikjatilfærslur -
| Sf. Gutt
Ánægður með markið! -
| Sf. Gutt
Dagurinn sem breytti Liverpool F.C.! -
| Sf. Gutt
Hvatning frá núverandi fyrirliða! -
| Sf. Gutt
Hvatning frá fyrrum fyrirliða! -
| Sf. Gutt
Mestu hrakfarir í marga áratugi! -
| Sf. Gutt
Lengi getur vont versnað! -
| Sf. Gutt
Væntumþykjan hverfur! -
| Sf. Gutt
Ný félagsmet!

