Hvað gerist? - Uppfært í dag og fram á kvöld!

23:00. Samantekt dagsins! Liverpool keypti Alexander Isak fyrir metfé. Marc Guehi kom ekki eftir að Crystal Palace bannaði honum að fara. Harvey Elliott var lánaður til Aston Villa. Hann fer þangað fyrir fullt og fast eftir árið ef Liverpool vill ekki nota sér endurkomurétt.
22:00. Harvey Elliott hefur verið lánaður til Aston Villa. Samningurinn kveður á um að Villa kaupi Harvey að ári. Liverpool á samt kauprétt á honum eftir árið ef rétt er skilið.
21:00. Ekkert verður af því að Marc Guehi gangi til liðs við Liverpool. Þessi frétt kemur öllum að óvörum þar sem Crystal Palace hafði, seinni partinn í dag, tekið tilboði Liverpool í Marc. Ástæðan fyrir sinnaskiptum Crystal Palace er sú að Oliver Glasner, framkvæmdastjóri Palace, hafnaði því að Marc yrði seldur því ekki hefði tekist að kaupa nógu góðan mann í hans stað. Marc verður því áfram hjá Palace. Alla vega fram í janúar þegar næst verður hægt að fara á milli liða. Samningur hans við bikarmeistarana rennur út næsta sumar.

16:00. Samkvæmt frétt BBC hefur Crystal Palace samþykkt tilboð Liverpool í enska miðvörðinn Marc Guehi. Liverpool hefur samkvæmt fréttinni boðið 35 milljónir punda. Marc líkt og Alexander fer í loknisskoðun seinna í dag. Allt verður að klárast fyrir lokun félagaskiptagluggans í kvöld.

13:00. Aston Villa sækist eftir því að kaupa Harvey Elliott. Hugsanlega verður hann lánaður til að byrja með.
12:00. Liverpool staðfesti í dag að Kostas Tsimikas spili sem lánsmaður hjá Roma til næsta vors. Ekki er um kaup að ræða.

10:00. Staðfest hefur verið að Liverpool kaupi Alexander Isak frá Newcastle fyrir metfé. Liverpool borgar 125 milljónir sterlingspunda fyrir sænska framherjann. Upphæðin gæti farið upp í 130 milljónir.
7:00. Spurning er hvort þeir Alexander Isak og Marc Guehi gangi til liðs við Liverpool áður en lokað verður fyrir félagaskipti. Talið er að Newcastle United muni sætta sig við að Alexander fari til Liverpool ef Liverpool leggur fram hærra kauptilboð en síðast. Seint í gærkvöldi greindu sumir fjölmiðlar frá því að Svíinn muni fara til Liverpool fyrir 125 milljónir sterlingpunda. Samningar eigi sem sagt að vera tilbúnir upp á þetta.
Liverpool á að hafa boðið í Marc fyrirliða Crystal Palace. Hermt er að Liverpool hafi boðið 35 milljónir Sterlingspunda í miðvörðinn.

6:00. Liverpool hefur keypt þá Jeremie Frimpong, Florian Wirtz, Milos Kerkez, Hugo Ekitike, Giovanni Leoni, Armin Pecsi og Will Wright. Giorgi Mamardashvili kom núna í sumar en gengið var frá kaupum á honum fyrir ári. Freddie Woodman kom á frjálsri sölu.
Trent Alexander-Arnold, Caoimhin Kelleher, Nathaniel Phillips, Jarell Quansah, Luis Diaz, Tyler Morton og Darwin Núnez hafa verið seldir.
Lokað verður fyrir félagaskipti núna í kvöld. Arne Slot sagði á blaðamannafundi eftir sigurinn á Arsenal í gær að hann hefði alltaf áhuga á að styrka liðshópinn.
-
| Mummi
Árshátíð Liverpoolklúbbsins 2026! -
| Sf. Gutt
Nýtt félagsmet! -
| Sf. Gutt
Wataru Endo fór í aðgerð -
| Sf. Gutt
Til hamingju! -
| Mummi
Liverpool páskaegg -
| Sf. Gutt
Leikjatilfærslur -
| Mummi
Kenny Dalglish! Sérstök viðhafnarsýning -
| Sf. Gutt
Florian Wirtz er ekki í lagi! -
| Sf. Gutt
Dregið í Meistaradeildinni -
| Sf. Gutt
James efstur á blaði!


