Miðasala á Liverpool – Newcastle
Liverpoolklúbburinn á Íslandi fékk óvænt til sölu miða á leik Liverpool – Newcastle United sem er
áætlað að fari fram 26. Febrúar 2025 en opnað verður fyrir sölu í dag mánudaginn 03.02.2025 kl.
13:00.
ATH.
Sala fer eingöngu fram í gegnum Sportabler og í stað þess að fyrstur kemur fyrstur fær þá skrá allir
sig á biðlista og þegar þeirri skráningu er lokið kl. 17:00, miðvikudaginn 05.02.2025 munum við taka
öll nöfnin og draga úr þeim eins og lottói. Við vonum að þetta verði til þess að allir sitji við sama
borð. Útdrátturinn verður í beinni útsendingu á miðvikudaginn 05.02.2025 kl. 19:00 á Facebook
síðu klúbbsins Liverpoolklúbburinn á Íslandi og á instagramsíðu klúbbsins #lfcice.
Hægt verður að skrá sig á biðlista fyrir miðum til miðvikudagsins 05.02.2025 til kl. 17:00. Verð fyrir
hvern miða er aðeins 15.000 krónur. Einungis skráðir félagar sem hafa greitt árgjaldið eiga möguleika
að kaupa miða. Til að kaupa miða þarf að fara inná sportabler.com eða Sportabler appið og fara inná
svæðið sitt hjá Liverpoolklúbbnum og kaupa miðana þar í gegnum markaðstorgið.
Í boði er að kaupa 2 miða á mann.
Við getum ekki ábyrgst að miðarnir séu hlið við hlið en við reynum eftir fremsta megni að raða því
þannig niður en því miður fáum við ekki alltaf úthlutað öllum miðum saman. Í flestum tilfellum fær
fólk miða saman. Allar nánari upplýsingar eru veittar í gegnum netfangið [email protected]
-
| Sf. Gutt
Spáð í spilin -
| Sf. Gutt
Diogo Jota og Andre Silva minnst -
| Sf. Gutt
Nýjasta nýtt úr sögunni endalausu -
| Sf. Gutt
Liverpool vill kaupa Marc Guehi -
| Sf. Gutt
Setjum undir okkur hausinn! -
| Sf. Gutt
Spáð í spilin -
| Sf. Gutt
Jafnt í krýningarleiknum -
| Sf. Gutt
Niðurtalning - 3. kapítuli -
| Sf. Gutt
Væri gaman að byrja með verðlaunum! -
| Sf. Gutt
Niðurtalning - 2. kapítuli