Miðasala á Liverpool – Ipswich og Liverpool – West Ham

Liverpoolklúbburinn á Íslandi er með til sölu miða á leiki Liverpool – Ipswich sem er áætlað að fari fram 25. Janúar 2025 kl. 15 og Liverpool – West ham sem er áætlað að fari fram 12. apríl 2025 en opnað verður fyrir sölu á laugardaginn 21.12.2024 kl. 13:00.
ATH.
Sala fer eingöngu fram í gegnum Sportabler og í stað þess að fyrstur kemur fyrstur fær þá skrá allir sig á biðlista og þegar þeirri skráningu er lokið kl. 16:00, þann 23.12.2024 munum við taka öll nöfnin og draga úr þeim eins og lottói. Við vonum að þetta verði til þess að allir sitji við sama borð. Útdrátturinn verður í beinni útsendingu á mánudaginn 23.12.2024 kl. 19:00 á Facebook síðu klúbbsins Liverpoolklúbburinn á Íslandi og á instagramsíðu klúbbsins #lfcice.
Hægt verður að skrá sig á biðlista fyrir miðum til mánudagsins 23.12.2024 til kl. 16:00. Verð fyrir hvern miða er aðeins 15.000 krónur. Einungis skráðir félagar sem hafa greitt árgjaldið eiga möguleika að kaupa miða. Til að kaupa miða þarf að fara inná sportabler.com eða Sportabler appið og fara inná svæðið sitt hjá Liverpoolklúbbnum og kaupa miðana þar í gegnum markaðstorgið.
Í boði er að kaupa 2 miða á mann.
Við getum ekki ábyrgst að miðarnir séu hlið við hlið en við reynum eftir fremsta megni að raða því þannig niður en því miður fáum við ekki alltaf úthlutað öllum miðum saman. Í flestum tilfellum fær fólk miða saman. Allar nánari upplýsingar eru veittar í gegnum netfangið [email protected]
-
| Sf. Gutt
Ibrahima kominn heim! -
| Sf. Gutt
Fjögur lið í boði! -
| Sf. Gutt
Stórsigur og öruggt áframhald! -
| Sf. Gutt
Einn miðvörður til taks! -
| Sf. Gutt
Svona er staðan! -
| Sf. Gutt
Sorgarfréttir -
| Sf. Gutt
Góð uppskera suður við Miðjarðarhaf! -
| Sf. Gutt
Mohamed kominn til baka! -
| Sf. Gutt
Af leikmannamálum -
| Sf. Gutt
Af Afríkukeppninni

