Miðasala á Liverpool – Manchester United
Liverpoolklúbburinn á Íslandi fékk óvænt til sölu miða á leik Liverpool – Manchester United sem er áætlað að fari fram 05. janúar 2025 en opnað verður fyrir sölu á fimmtudaginn 12.12.2024 kl. 13:00.
ATH.
Sala fer eingöngu fram í gegnum Sportabler og í stað þess að fyrstur kemur fyrstur fær þá skrá allir sig á biðlista og þegar þeirri skráningu er lokið kl. 13:00, þann 14.12.2024 munum við taka öll nöfnin og draga úr þeim eins og lottói. Við vonum að þetta verði til þess að allir sitji við sama borð. Útdrátturinn verður í beinni útsendingu á mánudaginn 16.12.2024 kl. 19:00 á Facebook síðu klúbbsins Liverpoolklúbburinn á Íslandi og á instagramsíðu klúbbsins #lfcice.
Hægt verður að skrá sig á biðlista fyrir miðum til laugardagsins 14.12.2024 til kl. 13:00. Verð fyrir hvern miða er aðeins 15.000 krónur. Einungis skráðir félagar sem hafa greitt árgjaldið eiga möguleika að kaupa miða. Til að kaupa miða þarf að fara inná sportabler.com eða Sportabler appið og fara inná svæðið sitt hjá Liverpoolklúbbnum og kaupa miðana þar í gegnum markaðstorgið.
Í boði er að kaupa 2 miða á mann.
Við getum ekki ábyrgst að miðarnir séu hlið við hlið en við reynum eftir fremsta megni að raða því þannig niður en því miður fáum við ekki alltaf úthlutað öllum miðum saman. Í flestum tilfellum fær fólk miða saman. Allar nánari upplýsingar eru veittar í gegnum netfangið [email protected]
-
| Mummi
Við minnum á aðalfund klúbbsins þann 6. maí nk. -
| Sf. Gutt
Hamingjuóskir frá Jürgen Klopp! -
| Sf. Gutt
Útilokað að tapa leiknum! -
| Sf. Gutt
Liverpool er Englandsmeistari 2025! -
| Sf. Gutt
Eitt stig dugir! -
| Sf. Gutt
Ljúkum verkefninu! -
| Sf. Gutt
Gleðilegt sumar! -
| Sf. Gutt
Conor Bradley Leikmaður ársins hjá Norður Írum -
| Sf. Gutt
Þrjú stig duga! -
| Sf. Gutt
Með stærri stundum!