Búið að dagsetja Evrópuleikina

Búið er að dagsetja leiki Liverpool í Meistaradeildinni. Nú eru minnst átta leikir framundan þar til útsláttarkeppnin tekur við. Forkeppnin nær fram í janúar. Hér að neðan eru leikirnar með dagsetningum.
Þriðjudagur 17. september. AC Milan v Liverpool.
Miðvikudagur 2. október. Liverpool v Bologna.
Miðvikudagur 23. október. Red Bull Leipzig v Liverpool.
Þriðjudagur 5. nóvember. Liverpool v Bayer Leverkusen.
Miðvikudagur 27. nóvember. Liverpool v Real Madrid.
Þriðjudagur 10. desember. Girona v Liverpool.
Þriðjudagur 21. janúar. Liverpool v Lille.
Miðvikudagur 29. janúar. PSV Eindhoven v Liverpool.

Þetta eru átta leikir. Í riðlakeppninni eins og hún var lögð upp árum saman voru leiknir sex leikir. Þetta fyrirkomulag er því lengra sem nemur tveimur leikjum. Svo bætast tveir leikir við hjá þeim liðum sem enda utan við átta efstu sætin í þeirri deildarkeppni sem nú hefur verið hönnuð. Þau þurfa að fara í gegnum umspil til að berjast um átta síðustu sætin fyrir 16 liða úrslitin. Átta lið þurfa því að spila tíu leiki til að komast í 16 liða úrslit. Ekki er verið að hugsa um álag á leikmönnum frekar en fyrri daginn!
-
| Mummi
Árshátíð Liverpoolklúbbsins 2026! -
| Sf. Gutt
Ryan Gravenberch gerir nýjan samning! -
| Sf. Gutt
Nýtt félagsmet! -
| Sf. Gutt
Wataru Endo fór í aðgerð -
| Sf. Gutt
Til hamingju! -
| Mummi
Liverpool páskaegg -
| Sf. Gutt
Leikjatilfærslur -
| Mummi
Kenny Dalglish! Sérstök viðhafnarsýning -
| Sf. Gutt
Florian Wirtz er ekki í lagi! -
| Sf. Gutt
Dregið í Meistaradeildinni


